Sport

Schumacher nískur á vasapening

Michael Schumacher, heimsmeistari í kappakstri, verður víst seint sakaður um að ofdekra börnin sín tvö. Schumacher, sem þénar andvirði fimm milljarða íslenskra króna á ári, segir að börn sín, átta og sex ára, fái tvær evrur eða 160 krónur í vasapening á viku. Kappaksturhetjan segir að börnin sín verði að læra eins og önnur börn að auður sé ekki sjálfgefinn og að börnin hafi val um að eyða vasapeningunum eða leggja þá fyrir og safna sér fyrir einhverju sem þau langi í. Hann viðurkennir þó að hafa misst taumhald á buddu sinni fyrir nokkrum árum og keypt litla kappakstursbíla handa þeim, enda séu þau nú þegar orðin ágætis ökumenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×