Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Aron Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 12:01 Ólafur Ólafsson er fyrirliði og leiðtoginn í liði Grindavíkur. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, gisti í heimabænum með fjölskyldu sinni nóttina fyrir fyrsta leik úrslitaeinvígis Bónus deildarinnar gegn Tindastóls í Grindavík í kvöld. „
Ég svaf hér í Grindavík í nótt, er með svona hollvinasamning og við fjölskyldan ákváðum því að verja nóttinni hér. Það er alltaf gott að vakna í Grindavík. Ég er spenntur og tilbúinn í slaginn,“ segir Ólafur í samtali við Vísi að morgni leikdags fyrir fyrsta leik gegn Tindastól í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn en Ólafur fluttist búferlum frá Grindavík með fjölskyldu sína eftir að jarðhræringar á Reykjanesskaga fóru á fullt. „Ég hef ekki gert þetta áður fyrir leik. Ákvað bara, af því að leikurinn er á laugardegi, að koma hingað með börnin. Gista hér. Við höfum alveg gert það áður en skemmtileg tilbreyting núna fyrir úrslitaeinvígið. Maður getur labbað upp í íþróttahús og notið þess að anda að sér sjávarloftinu. Maður fær meira kitl í magann við þetta.“ Jarðhræringar settu líf Grindvíkinga úr skorðumMynd: Björn Steinbekk Víti til varnaðar Sem deildarmeistarar er Grindavík með heimavallarréttinn í úrslitaeinvíginu og mikilvægt að nýta hann til hins ítrasta með sigri í kvöld. „Eins og er okkur ferskt í minni þá mættum við bara með einhvern töffaraskap í fyrsta einvígið á móti Njarðvíkingum og töpuðum fyrsta leik. Ef við mætum ekki tilbúnir þá töpum við fyrir hvaða liði sem er. Við þurfum að mæta klárir og sýna hvað í okkur býr. Þurfum að eiga alveg toppleik til þess að vinna þetta sterka lið Tindastóls. Þeir eru vel mannaðir í öllum stöðum. Ef við mætum ekki klárir þá bara hreinlega töpum við. Ég hef bara ekki trú á því að það sé einhver leikmaður í okkar liði sem mætir ekki tilbúinn í kvöld.“ Ætla mætti að leikmenn Grindavíkur mæti með mikið sjálfstraust í leik kvöldsins eftir að hafa tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri á Val í oddaleik í Grindavík á dögunum. Í þeim leik sýndi Grindavík, að margra mati, sína bestu frammistöðu í úrslitakeppninni til þessa. „Það yrði bara svolítið skrýtið ef við værum ekki klárir. Alveg frá fyrsta manni niður í þann tólfta. Þetta er skemmtilegasti tími ársins ef þú ert körfuboltamaður. Ef þú mætir ekki tilbúinn í fyrsta leik í úrslitum þá geturðu bara verið heima hjá þér. Það er eins gott að við mætum klárir. Ég hef ekki trú á öðru. Við mætum klárir, fólkið í Grindavík líka, Stinningskaldi. Það er eitthvað rosa fallegt við þetta. Að vera frá Grindavík og vera halda inn í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu í Grindavík. Það er eitthvað fallegt í loftinu.“ Samstaðan hjá Grindvíkingum er mikil. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Gefur fólkinu mikið Á þessu tímbili sneru lið Grindavíkur aftur á heimavöll sinn í Grindavík eftir að hafa neyðst til þess að spila í Smáranum tímabilið á undan. Úrslitakeppnin aftur mætt til Grindavíkur og það hefur gefið fólkinu þar mikið. „Það er bara geggjað. Eins og Jóhann bróðir sagði eftir síðasta leik. Við fáum aldrei nóg af því að tala um það hvað þetta hefur gert mikið fyrir okkur. Að sjá fólkið koma hér saman. Þetta gefur fólki mikið og hefur verið gaman að sjá hversu spennt fólk er fyrir þessu. Seldist upp á leik kvöldsins á einhverjum mínútum. Ótrúlega fallegt.“ Það er ávallt frábær stemning í HS-orku höllinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson Oddaleikur eftir oddaleik Baráttan um Íslandsmeistaraititlinn í efstu deild karla hefur ráðist í oddaleik undanfarin fjögur tímabil og kæmi ekki á óvart að einvígi Grindavíkur og Tindastóls gerði það líka. Ólafur býst við mikilli skák í rimmu liðanna tveggja. „Veltur á því hvort liðið verður klárara í hvern í leik í þessu einvígi. Þetta verða jafnir leikir, ekkert burst. Það lið sem verður klárt. Tilbúið að leggja allt í sölurnar. Það lið mun standa uppi sem sigurvegari. Ef við gerum það þá gerast góðir hlutir.“ Aftur í séns og hungrið mikið Ólafur hefur í tvígang orðið Íslandsmeistari með Grindavík. Síðast árið 2013. Hann komst nálægt þriðja Íslandsmeistaratitlinum árið 2024 en Grindavík tapaði þá í oddaleik gegn Val. Hungrið hjá Ólafi er mikið. Hann vill þriðja titilinn. „Ég held því enn fram að ef ekkert hefði gerst hér í Grindavík árið 2023 þá værum við búnir að verða Íslandsmeistarar síðan þá. Við erum komnir í séns aftur. Það er eins gott að nýta hann til fulls. Mæta klár og gera sitt allra besta til þess að lyfta þeim stóra. Það þarf að vinna þrjá leiki. Þú þarft að vinna Tindastól þrisvar sinnum til þess að verða Íslandsmeistari. Það er ákveðið verkefni. Markmiðið er skýrt.“ Fyrsti leikur Grindavíkur og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Upphitun fyrir leik með Stefáni Árna Pálssyni og sérfræðingum hans hefst klukkan hálf sjö.
Bónus-deild karla Grindavík Tindastóll Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira