Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Sindri Sverrisson skrifar 9. maí 2026 20:05 Karlalið Vals verður að fara aðra leið að Íslandsmeistaratitli á næstu leiktíð og kvennaliðunum fjölgar um tvö í efstu deild. Samsett/Diego/Ernir Miklar breytingar verða gerðar á úrslitakeppninni í handbolta frá og með næstu leiktíð, hjá körlum og konum, og liðum í efstu deild kvenna fjölgað úr átta í tíu.
Þetta má lesa úr þingskjölum frá 69. ársþingi HSÍ sem fram fór í Virkinu við Safamýri í gær. Handknattleiksfélögin í landinu samþykktu lagabreytingu sem gerir stjórn HSÍ og mótanefnd samandsins kleift að útfæra mótafyrirkomulag í reglugerðum, í stað þess að breyta þurfi lögum til að gera breytingar á mótunum. Mögulegar á mótunum verða lagðar fyrir ársþing, fyrir 1. mars ár hvert og taka þá gildi frá og með næstu leiktíð. Samhliða þessu voru samþykktar ályktanir um hvernig félögin vildu að fyrirkomulagið yrði á næstu leiktíð og framfylgi stjórn þeim vilja, eins og búast má við, breytast úrslitakeppnirnar mikið. Átta liðum skipt í tvo riðla Átta lið munu fara í úrslitakeppnina en þeim verður skipt í tvo fjögurra liða riðla. Efstu tvö lið úr deildarkeppninni byrja með tvö stig í riðlinum, og liðin í 3. og 4. sæti með eitt stig hvort, og endi lið jöfn að stigum í riðli þá endar það lið ofar sem endaði ofar í deildarkeppninni. Fyrirhuguð breyting á úrslitakeppninni.Skjáskot/Þingskjal 7 á ársþingi HSÍ Tvö lið úr hvorum riðli fara svo í undanúrslit þar sem spiluð verða einvígi líkt og síðustu ár. Úrslitakeppnin ætti að vera með sama sniði hjá körlum og konum því samþykkt var að fjölga liðum í efstu deild kvenna úr átta í tíu. Þetta þýðir að Gróttu og Víkingi verður boðið að taka sæti í efstu deild, eftir að hafa náð bestum árangri í Grill 66-deildinni í vor án þess að komast upp. Selfossi, eina liðinu sem féll úr Olís-deildinni, gæti verið boðið sæti ef Grótta eða Víkingur afþakkar.
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira