Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Þorsteinn Hjálmsson skrifar 7. maí 2026 18:46 Valur er Íslandsmeistari árið 2026! vísir / diego Valur er Íslandsmeistari í handbolta eftir 27-26 sigur gegn Val í oddaleik liðanna. Valur vann fyrsta leikinn, þriðja leikinn og fimmta leikinn á heimavelli á Hlíðarenda. Valsmenn voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu mest sex marka forystu. FH minnkaði muninn niður í tvö mörk fyrir hálfleik og mætti svo af krafti út í seinni hálfleik. Eftir fyrstu þrjár sóknir fyrri hálfleiks var FH búið að minnka muninn niður í eitt mark. Úr varð æsispennandi leikur, þó Valsmenn hafi verið skrefinu á undan var FH alltaf skammt á eftir. Valur hafði ekki fagnað Íslandsmeistaratitli á heimavelli í 28 ár. Á lokamínútunum náði Valur forystunni á ný en FH barðist til baka í enn eitt skiptið. Valur var með eins marks forystu á lokamínútunni og fengu víti en Daníel Freyr Andrésson varði og hélt FH á lífi. FH náði hins vegar ekki almennilegu skoti í síðustu sókninni, Ómar Darri Sigurgeirsson stökk upp en hitti ekki markið. Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í oddaleiknum með 9 mörk. VÍSIR / DIEGO Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi… FH laut í lægra haldi. Arnór Snær var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar. Viðtöl Olís-deild kvenna Valur FH