Upp­gjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líf­línu

Hjörvar Ólafsson skrifar
Sandra Erlingsdóttir stýrði sóknarleik ÍBV af myndarbrag. 
Sandra Erlingsdóttir stýrði sóknarleik ÍBV af myndarbrag.  Vísir/Ernir

ÍBV er enn á lífi í einvígi sínu við Val um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna. Eyjakonur unnu sannfærandi þegar liðin áttust við í þriðja leik sínum í úrslitum Olís-deildarinnar í N1-höllinni að Hlíðarenda í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er þar af leiðandi 2-1 fyrir Val.

Gestirnir frá Vestmannaeyjum hófu leikinn mun betur og Eyjakonur voru greinilega staðráðnir í að Íslandsmeistarabikarinn færi ekki á loft á Hlíðarenda í kvöld.

Sterk vörn ÍBV og átta varðir boltar hjá Ólöfu Maren Bjarnadóttur lögðu grunninn að því að ÍBV náði mest sex marka forskoti, 10-4, um miðjan fyrri hálfleik.

Þá tók Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, leikhlé og kveikti líf í leikmönnum sínum. Valskonur náðu vopnum sínum og Guðrún Hekla Traustadóttir átti góða innkomu af varamannbekknum.

Sandra Erlingsdóttir skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks og ÍBV var 15-14 yfir þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik.

Leikmenn ÍBV komu af krafti úr blokkunum eftir hálfleikinn og gestsirnir voru 27-19 yfir þegar rúmlega tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum.

Ölöf Maren hélt áfram að verja vel og Sandra Erlingsdóttir dró vagninn í sóknarleik Eyjaliðsins. ÍBV leit aldrei til baka og innbyrti að lokum átta marka sigur, 35-27, og liðin þurfa þar af leiðandi að mætast í fjórða skipti í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn kemur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira