Innlent

Áburðarverksmiðja seld kaupfélögum

Haraldur Haraldsson, gjarnan kenndur við Andra, hefur selt Kaupfélögum Skagfirðinga, Borgfirðinga og Héraðsbúa Áburðarverksmiðjuna. Haraldur keypti Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi árið 1999 á 1300 milljónir króna ásamt fleiri fjárfestum. Ákveðið hefur verið að hætta blöndun og sekkjun áburðar hér á landi í vor og verður allur tilbúinn áburður til notkunar á landinu fluttur inn. Blöndun og sekkjun fer fram í Eistlandi undir eftirliti Áburðarverksmiðjunnar og eftir uppskriftum hennar. Öllum fimm starfsmönnunum sem störfuðu við blöndun og sekkjun hefur verið sagt upp. Fyrir um aldarfjórðungi störfuðu 250 manns við áburðarframleiðslu í Gufunesi. Áburðarverksmiðjan hefur sagt upp leigusamningi sínum og flytur frá Gufunesi í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×