Gefur falska mynd 23. febrúar 2005 00:01
Verðbólgumælingin í landinu gefur falska mynd af hinni raunverulegu verðbólgu. Verðbólgan er í dag 4,5 prósent og þar með yfir vikmörkum Seðlabankans en í raun og veru er hún innan við 2,5 prósent. Þetta er skoðun Guðmundar Ólafssonar hagfræðings. Innan neysluvöruverðsvísitölu er reiknaður liður sem heitir reiknuð leiga á eigin húsnæði. Starfsmenn Hagstofunnar reikna út leigu í eigin húsnæði og tilfæra sem kostnað. Guðmundur segist telja óeðlilegt að gera þetta nema reikna tekjurnar á móti. "Ef maður borgar leigu í eigin húsnæði þá hlýtur maður að þurfa að reikna hana sem tekjur líka, ekki bara gjöld, þannig að þetta ætti að jafnast út. Þessi liður vegur upp undir típrósent í vísitölunni, að mig minnir, og hann gerir það að verkum að verðbólgan er yfir 4 prósentum. Ef hann væri það ekki þá væri verðbólgan innan við 2,5 prósent, að mér sýnist. Þessi eini reikningsliður keyrir reiknaða verðbólgu upp og hún verður mun hærri en ella," segir hann. "Ég er algjörlega ósammála því að þetta sé gert því að með þessu keyra starfsmenn Hagstofunnar upp verðbólguna. Öll lán í landinu hækka og bankarnir taka til sín gengishagnaðinn. Skuldirnar hækka en innlán bankanna eru í fæstum tilvikum vísitölutryggð." Neysluverðsvísitalan mælir meðaltalsverðgildi fjárhagslegra skuldbindinga. Fasteignaverð hefur snarhækkað upp á síðkastið og fjölskyldurnar í landinu hafa skuldsett sig meira en nokkru sinni áður. Um leið hefur hættan á fjárhagslegum erfiðleikum einstaklinganna aukist verulega. Guðmundur telur hættuna meiri og sterkari en áður og telur framhaldið ráðast af því hvort gengi krónunnar fer niður og húsnæðisverð lækki á næstunni eða hvort stöðugleiki ríki í þessum efnahagsmálum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira