Sport

Rigning tefur Nissan-mótið í golfi

72 kylfingum tókst ekki að ljúka öðrum keppnisdegi á Opna Nissan-mótinu í golfi í Kaliforníu. Ausandi rigning varð til þess að fresta varð keppni um fjórar klukkustundir. Bandaríkjamaðurinn Chad Campbell hefur forystu og er á sex undir pari, þremur höggum á undan Robert Allenby. Tiger Woods náði aðeins að ljúka fjórum holum í gær og er samtals á fimm höggum undir pari. Sýnt verður beint frá síðasta keppnisdegi á Sýn annað kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×