Villandi samanburður 12. desember 2005 12:51
Formaður Landssambands Eldri borgara sakar fjármálaráðuneytið um villandi samanburð í frétt sem birtist í vefriti fjármálaráðuneytisins, þar sem fullyrt var að ráðstöfunartekjur aldraðra væru hæstar á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Fréttinn af samantekt Nordisk sosialstatistik á kjörum aldraðra var birt í vefriti fjármálaráðuneytisins síðastliðinn fimmtudag undir fyrirsögninni "ráðstöfunartekjur aldraðra á norðurlöndum hæstar á Íslandi." Í greininni er sagt frá því að skoðun norrænu stofnunarinnar hafi leitt í ljós að ráðstöfunartekjur eldri borgara á Íslandi, það er að segja tekjur eftir skatta, væru hæstar hér á landi af norðurlöndunum. Formaður landssambands Eldri borgara er ósáttur við samanburð stofnunarinnar og ekki síst að fjármálaráðuneytið skuli setja samanburðinn upp án þess að geta þess að í samanburðinum er fólk frá 65 ára aldri, en alls víðast á Norðurlöndunum er lífeyrisaldur miðaður við 65 ár en ekki 67 ár eins og á Íslandi. Það þýðir í raun að hluti Íslendinga í könnunni er enn á vinnumarkaði og skekkir hann því meðaltalið talsvert að mati formanns Landssambands Eldri borgara. "Það sem við sjáum að þessu er fyrst og fremst þessi samanburður sem ekki stenst við frekari skoðun," segir Ólafur sem telur að þarna sé verið að steypa saman öldruðum á vinnumarkaði og þeim sem komnir eru á ellilífeyrisaldur. "Ellilífeyrirsþegar á Íslandi njóta þannig lægra lífeyris en aðrar norðurlandaþjóðir, og það er auðvitað sá samanburður sem skiptir máli." Ólafur segir fréttir fjármálaráðuneytisins beinlínis villandi í þessu ljósi. Hann segir ljóst að munur á atvinnuþátttöku sé stórt atriði þegar verið sé að bera saman meðalráðstöfunartekjur. Þannig sé atvinnuþátttaka aldraðra hér á landi mun meiri en á Norðurlöndunum. Fulltrúar aldraðra hyggjast funda með forystumönnum ríkisstjórnarinnar á mánudag í næstu viku. Þar munu aldraðir að sögn Ólafs setja fram kröfur sínar um hærri lífeyrisgreiðslur og fleiri mál.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira