Ráðherra gangi erinda Norðlendinga 18. maí 2005 00:01
Ýmislegt virðist vera að gerast í álmálum þessa dagana. Alcoa hefur lýst yfir áhuga á að reisa álver á Norðurlandi og verið er að stofna félög bæði með og á móti stóriðju í Eyjafirði. Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum eru ósáttir við iðnaðarráðherra en þeir telja ráðherrann eingöngu ganga erinda Norðlendinga. Landshluta- og hrepparígur eru líklega tilhlýðileg orð til að lýsa ástandinu þessa dagana í álmálum. Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau ummæli Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra að ekki beri að fagna viljayfirlýsingu Norðuráls, Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja um athugun á hagkvæmni álvers í Helguvík eru hörmuð. Þykir sjálfstæðismönnum einsýnt að iðnaðarráðherra líti eingöngu á sig sem ráðherra síns kjördæmis en ekki landsins alls. Um leið reynir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, að mynda þá samstöðu norðan lands sem ráðherrann bað um og leggur til að Húsavík verði fyrsti kostur fyrir álver á Norðurlandi og Dysnes í Eyjafirði sá næsti. Magnús Þór Ásgeirsson, formaður Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, og Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, voru þó ekki á því á dögunum að forsendur væru fyrir samstöðu Norðlendinga, þeir myndu berjast um hylli fjárfesta hver á sínum stað hvað sem líði viljayfirlýsingu um uppbyggingu í Helguvík. Hrepparígurinn er þó ekki bundinn við Norðurlandið því á Reykjanesi virðist barátta vera í uppsiglingu milli álversins í Straumsvík, sem hyggur á stækkun og þarf þá töluverða orku í viðbót, og Norðuráls sem gerði Helguvíkursamkomulagið sem kom öllu af stað.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira