Domingo í skýjunum með tónleika 14. mars 2005 00:01
Á fimmta þúsund manna hlýddu á stórsöngvarana Placido Domingo og Önu Mariu Martinez á tónleikum þeirra í Egilshöll í gærkvöld. Skipuleggjandi tónleikanna segir Domingo hafa verið í skýjunum yfir móttökum Íslendinga. Mikil umferðarteppa varð við Egilshöll í gærkvöld þegar þúsundir manna streymdu þangað til að hlýða á tónleika spænska tenórsins Placidos Domingos og söngkonunnar Önu Mariu Martinez. Þegar verst lét lá bílaröð frá höllinni og niður undir Ártúnsbrekku. Að sögn lögreglu gekk umferðin þó áfallalaust fyrir sig en um stundarfjórðungsseinkun varð á tónleikunum af þessum sökum. Lögreglan segir deginum ljósara að gatnakerfið beri engan veginn umferðarþunga af þessari stærðargráðu. Þorsteinn Kragh, skipuleggjandi tónleikanna, er hins vegar hæstánægður með tónleikana sjálfa. Hann segir að þeir hafi tekist í alla staði frábærlega. Tveir íslenskir söngvarar, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson, komu fram í lok tónleikanna og sungu nokkur lög með Domingo og Martinez og segir Þorsteinn að það hafi verið algjörlega óvænt og óskipulögð uppákoma. Hann hafi verið staddur frammi á gangi þegar tónleikunum lauk og verið var að klappa söngvarana upp þegar hann hafi rétt náð í Diddú sem var á leið annað að syngja. Hann hafi sagt henni hann hefði á tilfinningunni að eitthvað ætti eftir að gerast því Domingo hefði gefið sitthvað í skyn. Stuttu síðar hafi hún svo verið kölluð á svið. Aðspurður hvað stórsöngvarinn hefði sagt sjálfur eftir tónleikana sagði Þorsteinn að Domingo hefði verið í skýjunum og Ana Maria Martinez sömuleiðis. Hann hafi tekið fleiri lög í uppklappinu en hann ætlaði og einhver hefði fleygt því að hann ætlaði aldrei að stoppa því það hefði verið svo gaman hjá honum. Domingo hafi verið mjög ánægður með skipulagið og móttökurnar. Aðspurður hvort Egilshöll henti fyrir tónleika sem þessa segir Þorsteinn að lofthæðin sé 23-24 metrar en hljómburðurinn hafi verið ótrúlega góður. Listamennirnir voru í hádegisverði hjá forseta Íslands og fara af landi brott um klukkan fjögur í dag. Þorsteinn segir Önu Mariu hafa hrifist svo af landinu að hún ætli sér að kaupa land hér á landi. Hún ætli að búa hér og skrifa bók.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira