Útiloka ekki frekari framúrkeyrslu 18. júní 2005 00:01
Í heilbrigðisráðuneytinu vonast menn til að vera nærri núllinu á þessu ári en í landbúnaðarráðuneytinu hafa menn ekki komist fyrir vanda skólanna þótt rekstur þeirra horfi betur við. "Það er takmark okkar að vera innan fjárlaga," segir Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um framúrkeyrslu undir hans ráðuneyti á fjárlagaárinu 2004. "Við reynum eftir megni af hafa eftirlit með okkar stofnunum. En oft koma upp óvænt útgjöld sem ekki er hægt að komast hjá, sérstaklega hjá heilbrigðisstofnunum sem taka á móti bráðatilvikum." Jón segir það eðlilegt að ráðuneyti sem veltir 25 milljörðum sé hæst í krónutölum og bendir á að þrátt fyrir mikinn umframkostnað hjá Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi sé það samt innan fjögurra prósenta markanna. Hann segir einnig að ástandið sé mun betra hjá heilbrigðisráðuneytinu í dag en fyrir nokkrum árum. Jón vildi ekki lofa því að ráðuneytið yrði innan ramma fjárlaga á þessu fjárlagaári, en hann var vongóður um að það yrði nærri núllinu ef ekki neitt óvænt kæmi upp á. "Við erum nánast með þessa skóla í gjörgæslu," segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra um framúrkeyrslu Hólaskóla og Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Hann segir eftirspurn eftir menntun hafa aukist stórlega síðustu ár og það gilti líka um þessa skóla. "Það er mikil spenna hjá stjórnendum þessara skóla að verða við þessu kalli nemenda." Einnig sagði Guðni að um uppsafnaðan vanda síðustu ára væri að ræða. Yfirdýralæknir, sem heyrir undir fjármálaráðuneytið, fór einnig töluvert fram úr fjárlögum. Ingimar Jóhannsson, fjármálastjóri landbúnaðarráðuneytisins, skýrir það sem uppsafnaðan vanda síðustu ára vegna gjaldþrota sláturhúsa, en þau greiða yfirdýralækni fyrir eftirlit með slátrun. Ingimar segir einnig að Hólaskóli hafi farið út í tilraunaverkefni tengd fiskeldi sem hann réði ekki við. Þá sagði hann kostnaðinn við að breyta Hvanneyri í háskóla hafa verið vanmetinn og að þar hafi menn heldur ekki gætt að sér og hafi of mörg járn í eldinum miðað við fjárveitingar. Ingimar átti von á því að skólarnir myndu aftur fara fram úr fjárlögum í ár. "En menn eru byrjaðir að bremsa þótt þeir hafi ekki enn numið staðar."
Fréttir Innlent Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut Sjá meira