Stelast í gegnum göngin 18. júní 2005 00:01
Verktakinn hefði getað skilað Fáskrúðsfjarðargöngum tilbúnum í síðasta mánuði, ef Vegagerðin hefði greitt flýtifé. Göngin verða því ekki opnuð fyrr en í október. Austfirðingar hafa litla biðlund og stelast í gegn, starfsmönnum til mikillar armæðu. Það var í september í haust sem starfsmenn Ístaks sprengu síðasta haftið og þar með voru göngin komin í fulla lengd, 5,700 kílómetra, og gat komið milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar. Síðan þá hafa sjötíu manns unnið að frágangi. Verið er að leggja síðustu hönd á vatnsklæðningar og meðfram akbrautinni er verið að grafa drenlögn. Starfsmenn Rafmiðlunar eru að setja upp ljósagrind í loftið, á hana er lagður rafmagnskapall og ljóskastarar festir á til að lýsa upp göngin. Þá er malbikun komin vel á veg og stefnt að því að henni ljúki um miðjan júlí. Vegagerðin utan, að gangnamunnum, er einnig í fullum gangi en með henni mun opnast ný þjóðleið um fagran dal Fáskrúðsfjarðar. Steindór Óli Ólason, yfirverkstjóri hjá Ístaki, segja að unnt hefði verið að ljúka göngunum í maímánuði ef þeir hefðu verið beðnir um það. Það hefði hins vegar kostað peninga sem Vegagerðin var ekki tilbúin að greiða. Sigurður Oddsson, deildarstjóri Vegagerðarinnar á Norðaustursvæði, segir að menn hafi viljað nota peningana í annað, Vegagerðin hafi einfaldlega ekki haft efni á þessu, auk þess sem fjárheimild var ekki til fyrir flýtifé. Austfirðingar virðast hins vegar hafa litla biðlund og margir stelast í gegn. Steindór segir það mjög miður, enda beri Ístak ábyrgð á göngunum og öllu sem fari í gegnum þau. Hann segir þetta alvarlegt mál sem muni verða tekið fastar á. Stefnt er að því að göngin verði opnuð 3. október. Það eru því ekki nema rúmir þrír mánuðir í það að leiðin frá Fáskrúðsfirði til Reyðarfjarðar styttist um 31 kílómetra.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira