Bundið slitlag til Ísafjarðar 10. september 2005 00:01
Tignarleg stálbogabrú verður byggð yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi en með þverun fjarðarins styttist vetrarleiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um 33 kílómetra. Með nýjustu ákvörðun ríkisstjórnarinnar stefnir í að bundið slitlag verði komið á veginn til Ísafjarðar eftir þrjú ár. Brúin yfir Mjóafjörð verður eitt glæsilegasta mannvirkið á þjóðvegakerfi landisns. Þetta verður um hundrað metra löng stálbogabrú og mun boginn teygja sig upp í 22 metra hæð yfir sjávarmáli. En reynum nú að átta okkur á því hvar á Vestfjörðum þessi tignarlega brú mun rísa. Mjóifjörður er innarlega í Ísafjarðardjúpi. Á sumrin geta menn stytt sér leið með því að aka yfir Eyrarfjall en þegar sá vegur lokast á haustin verða menn að aka út allt nesið og um Vatnsfjörð sem þar er yst. 1600 milljónir króna eru á vegaáætlun til að ljúka verkinu á næstu þremur árum. Ekki aðeins verður Mjófjörður þveraður heldur verður einnig farið yfir Reykjafjörð við Reykjanes og yfir Vatnsfjarðarháls. Þannig fæst 33 kílómetra stytting, miðað við núverandi vetrareg. Þessi veglína þýðir að þjóðvegurinn mun framvegis liggja allt árið um hið fornfræga höfuðból, Vatnsfjörð, og ennfremur mun vegurinn liggja um hlaðið á Reykjanesskóla. Það leiðir væntanlega til þess að meiri not verða fyrir hin miklu mannvirki sem þar eru, þar á meðal sundlaugina. Að sögn Magnúsar Jóhannssonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar, er stefnt að því að framkvæmdir hefjist næsta sumar og að þeim ljúki árið 2008. Ný ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að setja 800 milljónir króna af símapeningum í veg um Arnkötludal mun ennfremur þýða að þjóðvegurinn milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, um Djúp, Hólmavík og Búðardal, verður að öllum líkindum allur kominn með bundið slitlag síðla árs 2008, eftir þrjú ár.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Sjá meira