Púlvinna að vera heimilislaus 17. nóvember 2005 08:00 Feðgar á góðu róli. Eftir að hafa gengið glapstigu meirihluta ævinnar er Hörður nú kominn á gott ról og býr nú í Byrginu með syni sínum Óðni Þór. "
Ég þakka Guði fyrir að hann hefur ekki farið út í neyslu, því þó hann sé ungur væri voðinn vís hefði ég ekki verið kominn í lag sjálfur," segir Hörður um son sinn Óðin Þór. Hann er fjórtán ára og býr með föður sínum í Byrginu. Hörður var þó ekki líklegur til að verða að fíkli þegar hann var ungur drengur sem stundaði allar mögulegar íþróttir af miklu kappi. "Svo þegar ég varð fjórtán ára hætti ég alveg í öllu sporti og byrjaði að drekka. Svo þegar ég fór í fyrsta sinn upp á Litla-Hraun nítján ára gamall lærði ég á harðari efni og þar með hófst sú neysla." Hörður var heimilislaus í mörg ár og getur því útskýrt það hvernig flestir sem svo er fyrir komið geta orðið sér úti um húsaskjól. "Yfirleitt er það þannig að nokkrir heimilislausir taka sig saman og verða sér úti um efni sem oftast er keypt fyrir eitthvert þýfi sem dílernum hugnast. Svo er því veifað í fíkil sem á íbúð eða hefur yfir slíku að ráða og þá er díllinn sá: "Við höldum þér uppi á efnum en þú leyfir okkar að vera." Svo er haldið margra daga geim þar sem hinir heimilislausu hrúgast á einhvern einn. Þetta eru þessi partí sem löggan er að stoppa en ég veit ekki hvort hún áttar sig á því að megnið af liðinu er heimilislaust fólk. Svona gekk þetta fyrir sig hjá mér í mörg ár. Ég var einn af þeim sem voru á götunni en kom mér þó alltaf inn í hús og það er ein erfiðasta vinna sem ég hef tekið að mér, skal ég segja þér. Þetta er rosa púl því þú þarft alltaf að vera á tánum með alls konar reddingar. Enda var það ekki að ástæðulausu að ég var kallaður Höddi Karls - sem er líklegur til alls. En þar er alveg grátlegt hvað maður er búinn að eyða miklu í þetta. Þegar ég var giftur tókum við hjónin það saman hverju við eyddum í dópneyslu á mánuði. Á þeim tíma vorum við þó bara róleg og fannst sem við værum varla að gera neitt en þegar það var tekið saman kom í ljós að við eyddum tæpri hálfri milljón í neyslu og þetta var árið 1996. Guð sé lof að ég er kominn hingað og hef frelsast og öll þessi fortíð er á bak og burt."
Innlent Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira