Vinstri grænir: 24. október 2005 04:00 Forysta vinstri grænna Steingrímur J. Sigfússon formaður og Katrín Jakobsdóttir varaformaður fagna undir lok landsfundar í gær. fréttablaðið/e.Ól "
Meðaltalið sýnir tuttugu prósenta óútskýrðan launamun á körlum og konum sem er hreint ótrúleg staða. Við lítum á þetta sem mannréttindamál en ekki aðeins sem skyldu hvers og eins að biðja um hærri laun. Það er bara ekki það einfalt," segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, að loknum landsfundi flokksins í gær. Eins og fram hefur komið skilgreina vinstri grænir sig nú sem róttækan flokk feminískra sjónarmiða. "Ungar konur voru mjög áberandi á þessum stærsta landsfundi sem við höfum haldið," segir Katrín einnig, en kosið var til stjórnar flokksins og eru konur þar í meirihluta. Fundurinn samþykkti fjölda ályktana og voru þar á meðal ályktanir um breytingar á stjórnarskrá þar sem flokkurinn mælist til þess að reglur um sjálfbæra þróun og umhverfismál verði stjórnarskrárbundnar. Einnig vill flokkurinn að réttur allra til heilnæms vatns ásamt því að landið verði án sýkla-, efna- og kjarnorkuvopna komi inn í stjórnarskrána. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna segir að flokkurinn hafni því alfarið þeirri ályktun sem landsfundur Sjálfstæðisflokks sendi frá sér að málsskotsrétti forsetans verði fórnað fyrir óljós ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur: "Við erum ekki tilbúin í einhverja verslun um 26. grein stjórnarskrárinnar." Katrín segir að næst á dagskrá sé að taka til við vinnu í umhverfismálum. Bæði Steingrímur og Katrín voru ein í framboði til forystu í flokknum og voru því sjálfkjörin.
Innlent Mest lesið Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Innlent „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Innlent Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Erlent Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Innlent Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Innlent Tína rusl til að komast á Reyki Innlent Rúta lenti utan vegar Innlent Trausti vill snúa aftur Innlent Fleiri fréttir Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Tína rusl til að komast á Reyki Trausti vill snúa aftur „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Rúta lenti utan vegar Ráðaleysi, viðvörun og hetjusaga Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Enginn meðalmaður eða meðalkona til í alvörunni Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Tæp sextíu prósent landsmanna vilja banna sjókvíaeldi Sjálfstæðisflokkurinn ekki í samkeppni og „alveg slök“ í Miðflokknum Einar fundar með borginni um málefni miðborgar Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Snjókomubakkinn nálgast borgina Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Sjá meira