Sextug og kynþokkafull sem aldrei fyrr 10. nóvember 2005 22:30 Susan Sarandon - Án nokkurs vafa ein allra besta leikkona Hollywood og slær hvergi slöku við.
Það er vafalaust allt í senn martröð og draumur fyrir ungar leikkonur að fá hlutverk á móti Susan Sarandon. Draumur, vegna þess að hún er meðal bestu leikkvenna kvikmyndaiðnaðarins og martröð af því henni tekst yfirleitt að skyggja á þær með suðuríkjaþokka sínum og lífsreynslu. Þannig fór að minnsta kosti fyrir mótleikkonum hennar í Alfie þar sem hver fegurðardísin af fætur annarri fölnaði við hliðina á hinni tæplega sextugu Sarandon. Leikkonan á að baki ótrúlegan feril í kvikmyndaborginni. Hún fór ásamt eiginmanni sínum, Chris Sarandon, í áheyrnarpróf fyrir kvikmyndina Joe í New York. Þau voru þá nýútskrifuð úr kaþólskum háskóla og vildu reyna fyrir sér í stórborginni. Sarandon hreppti hlutverkið en Chris, sem hafði lagt leiklist fyrir sig í skólanum, var hafnað. Fimm árum síðar var Sarandon á allra vörum þegar hún heillaði Frank-N-Furter upp úr skónum í költ-snilldinni Rocky Horror Picture Show. Sarandon gekk þó erfiðlega að slá almennilega í gegn og það var ekki fyrr en fimmtán árum eftir ævintýrið með klæðskiptingnum að leikkonunni tókst að koma sér almennilega á framfæri. Þá lék hún á móti Kevin Costner og Tim Robbins í Bill Durham. Sarandon sagði síðar að hún og Kevin Costner hefðu beitt "öllum" brögðum til að hlutverkið yrði hennar. Bill Durham hafði einnig mikil áhrif á einkalíf Sarandon því við tökur á myndinni kynntist hún núverandi eiginmanni sínum, Tim Robbins. Sarandon ól honum tvö börn og í stað þess að hella sér aftur í kvikmyndirnar þá velur hún sér nú hlutverk sem henni þykja sér vera samboðin. Hefur hún túlkað margar af eftirminnilegustu kvenpersónum kvikmyndasögunnar og nægir þar að nefna systur Helenu í Dead Man Walking og Louise í Thelma & Louise.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira