Óttast að gripið verði til vopna 21. ágúst 2005 00:01
Rýming síðustu landtökubyggða gyðinga á Gaza gekk stórátakalaust í gær. Hins vegar beinast sjónir manna í frekari mæli að Vesturbakkanum þar sem rýma á fjórar byggðir í næstu viku. Þar kom í gær til átaka milli hermanna og landtökumanna í bænum Sanúr þegar hermenn undirbjuggu brottflutning landtökumanna sem fara á fram á þriðjudag. Um tvö þúsund harðlínumenn hafa komið sér fyrir í Sanúr til að berjast gegn brottflutningnum. Talið er að þeir muni beita vopnavaldi og því er líklegt að hermenn verði vopnaðir við brottflutning landtökumanna af Vesturbakkanum en óvopnaðar öryggissveitir sáu um brottflutninginn á Gaza. Hermenn brutust gegnum götuvígi og víggirtar girðingar í fjórum landtökubyggðum í gær og fylgdu társtokknum íbúum í rútur sem fluttu þá á brott. Ekki er búist við miklum átökum þegar síðasta landtökubyggðin á Gaza verður rýmd í dag. Netzarim er suður af Gaza-borg, þar búa um 400 manns og var hún ein af fyrstu byggðum landnema. Þar með hefur 21 landtökubyggð verið rýmd á Gaza en samkvæmt ákvörðun Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraela verða að auki rýmdar fjórar byggðir á Vesturbakkanum. Sharon lýsti í gær yfir vanþóknun á ofbeldisfullri andstöðu við brottflutningana og kallaði aðgerðir landtökumanna spellvirki. Áður en brottflutningar Ísraela hófst í síðustu viku höfðu yfirvöld í Ísrael og Palestínu samþykkt að heimili landnema yrðu rudd til að rýma fyrir palestínskum byggingum. Niðurrif á heimilum landtökumanna hófst í gær þegar jarðýtur jöfnuðu fjölda húsa við jörðu í bænum Nissanit. Flest húsin eru einbýlishús en í staðin verða byggð fjölbýlishús til að stemma stigu við vaxandi húsnæðisvanda Palestínumanna. Þá hafa Ísraelar samþykkt að borga andvirði rúmra þriggja milljarða króna til að fjarlægja rústir landnemabyggða. Búist er við að öll hús landtökumanna á Gaza-svæði verði brotin niður á næstu tveimur vikum sem er helmingi skemmri tími en áður var talið. Þá mun herinn einnig fjarlægja höfuðstöðvar sínar á Gaza áður en palestínsk yfirvöld taka við völdum eftir um það bil mánuð.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira