Jólin klámvædd í gosdrykkjaauglýsingu? 14. desember 2005 17:20 „
Það vilja allar mömmur kyssa jólasveininn okkar." Þetta fullyrðir Ölgerðin í auglýsingu sem birst hefur í dagblöðum síðustu daga þar sem sjá má jólasvein með bera bringu, og konu krjúpandi við hlið sér. „Klámvæðing á jólunum," segja femínistar. Auglýsingin sem um ræðir er blaðaauglýsing fyrir gosdrykkinn Pepsi Max sem Ölgerð Egils Skallagrímssonar framleiðir og fæddist hugmyndin að henni þar innanhúss. Hún hefur birst í Fréttablaðinu undanfarna daga og óhætt er að segja að þar gefi að líta jólasvein sem sé nokkuð kynþokkafyllri en þeir sem við eigum að venjast - í það minnsta fáklæddari. Konan á myndinni virðist svo vilja töluvert meira en mjúkan pakka frá sveinka. Femínistum finnst auglýsingin ekki beint í anda jólanna. Hjálmar G. Sigmarsson hjá karlahópi Femínistafélagsins segir að með þessu sé verið að klámvæða jólin. Honum finnst auglýsingin kjánaleg og að í henni felist lítillækkun, ekki aðeins fyrir konur heldur fólk almennt. Hörður Harðarson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Ölgerðarinnar, segist algjörlega ósammála því að verið sé að lítillækka fólk í auglýsingunni. Þarna sé einfaldlega myndarlegur jólasvein, t.a.m. laus við bumbuna sem sá ameríski skarti, og að konan vilji bara kyssa hann. Það sé ekkert óeðlilegt við það.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Fleiri fréttir Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Sjá meira