Höfum hóflegar væntingar 19. júní 2005 00:01
Talsmenn þeirra sem styðja hvalveiðar í atvinnuskyni segjast hafa nærri því nógu mörg atkvæði til að fá hvalveiðibanninu hnekkt. Það hefur verið í gildi síðan árið 1986. Til að fá banninu hnekkt þurfa að minnsta kosti tveir þriðju af 66 aðildarríkjum hvalveiðiráðsins að kjósa svo. "Við höfum hóflegar væntingar. Afnám hvalveiðibannsins verður stærsta málið á dagskrá, en ég á ekki von á því að því verði aflétt á þessum fundi," segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. "Síðasti fundur var nokkuð jákvæður en það hefur lítið gerst síðan og ég á því ekki von á mjög róttækum breytingum í ár." Árni segir að undanfarin hafi staðan verið að breytast smám saman hvalveiðisinnum í vil. "Ég vonast því til að það verði að minnsta kosti tekin ákveðin skref í átt að því að aflétta banninu," segir Árni. Hvalveiðisinnar benda á að þó þeir nái ekki því lágmarki sem þarf til að hnekkja banninu geti þeir komið ýmsum minniháttar breytingum í gegn, til dæmis leynilegum atkvæðagreiðslum. "Það er of snemmt að spá um hvort það verði gert, en persónulega finnst mér að ef einhverjir vilja leynilegar atkvæðagreiðslur sé sjálfsagt að þær fari fram." Önnur mál sem búist er við að fái mikla athygli á fundinum eru hvalveiðar Japana í vísindaskyni, en rétt eins og Íslendingar selja þeir hvalkjötið í verslunum. Japanir veiða að jafnaði um 600 hrefnur að ári og munu hugsanlega tilkynna að þeir ætli að hækka kvótann. Noregur er hins vegar eina ríkið í Alþjóðahvalveiðiráðinu sem veiðir hvali í atvinnuskyni í trássi við bannið. Árni segir að hrefna verði örugglega veidd í vísindaskyni við Ísland í sumar.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira