Vinnubrögð benda á al-Qaeda 8. júlí 2005 00:01
Talsmenn lögreglunnar í Lundúnum segja nú að hryðjuverkin bera ummerki þess að hryðjuverkamenn al-Qaeda hafi verið að verki, og hryðjuverkasérfræðingar taka í sama streng. Eftirfarandi ummerki og vinnubrögð benda öll til þess: einföld skotmörk eða svokölluð mjúk skotmörk, tímasetning árásanna á meðan fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims stendur og frumstæð og ódýr tækni. Þetta er verklagið sem al-Qaeda hefur tileinkað sér undanfarið. Al-Qaeda sem gerði árásirnar á Bandaríkin ellefta september 2001 laut stjórn Ósama bin Ladens og var í nánu sambandi við hann. Þessi samtök hafa í raun og veru horfið í hryðjuverkastríðinu svokallaða. Í staðinn er komin al-Qaeda, hugmynd eða heimspeki sem byggir á hryðjuverkasamtökum bin Ladens og vinnur í grófum dráttum að sama markmiði. Þetta er í samræmi við vonir bin Ladens, sem vildi standa í fylkingarbrjósti heilags stríðs gegn trúleysingjum, fylla múslíma eldmóði og hvetja þá til þátttöku í stríðinu. Það virðist hafa tekist. Fótgönguliðarnir í stríðinu eru hins vegar ekki lengur einungis ungir, reiðir menn sem töldu sig ekki eiga von í heimalöndum sínum í Miðausturlöndum. Fótgönguliðarnir eru nú miklu frekar reiðir, ungir menn frá Vesturlöndum; oftast múslímar með ágæta menntun og skilning á nútímatækni og samfélögunum sem þeir starfa og búa í. Síðastu átján mánuði hafa hópar af þessu tagi ítrekað látið til sín taka, bæði í Arabaríkjum og í Miðausturlöndum, til dæmis Írak, Spáni og nú í London, að því er virðist. Þessir hópar skipuleggja einfaldar og ódýrar árásir sem valda skaða á borð við þann sem sjá má eftir árásina í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira