Innlent

Litháar á þrælakjörum hjá íslensku þjónustufyrirtæki

Skýrt og alvarlegt brot. Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, segir brotið skýrt og alvarlegt.
Skýrt og alvarlegt brot. Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, segir brotið skýrt og alvarlegt.

Verslunar- og þjónustufyrirtæki í Reykjavík hefur fengið að minnsta kosti þrjá Litháa hingað til lands til að vinna á lager fyrirtækisins. Þetta er gert á vegum starfsmannaleigu í Litháen sem ber íslenskt nafn og íslenskur karlmaður er skráður fyrir.

Ekki er vitað meira um leiguna eða nákvæmlega hversu margir starfsmennirnir eru eða hafa verið en verið er að rannsaka málið á vegum ASÍ. Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, segir að Litháarnir hafi verið fengnir hingað á kjörum sem séu víðs fjarri kjarasamningum hér á landi. Verið sé að kanna réttarstöðu þessara starfsmanna og málið fari sinn gang innan kerfisins en þetta sé í fyrsta skipti sem svona mál komi upp í þjónustu­geiranum, áður hafi þetta verið mest í framkvæmdageiranum.

"Ráðningarsamningarnir sýna þrælakjör," segir Magnús og telur að starfsmennirnir fái um sextíu þúsund krónur á mánuði sem er langt undir lágmarkskjörum Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Fólkið hefði átt að fá greitt samkvæmt þeim taxta. Rannsókn ASÍ gengur hægt enda segir Magnús að þjónustufyrirtækið sé ekki mjög viljugt til að gefa upplýsingar en Litháarnir komu hingað á vegum starfsmannaleigunnar.

Þá segir Magnús að það hái ASÍ að frumvarp félagsmálaráðherra sé ekki komið í gegnum þingið. "Þegar svona skýr og alvarleg brot eru framin þá gæti Vinnumálastofnun stöðvað tímabundið starfsemi fyrirtækisins ef þessi lög sem við bíðum eftir hefðu tekið gildi," segir hann.

Erlent launafólk hefur veika stöðu í ókunnu landi, ekki síst vegna málleysisins. Magnús segir að það séu sem betur fer alltaf einhverjir sem gefi sig fram og segi frá. Svo hafi verið í þessu tilviki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×