Beggja blands að vera í fremstu víglínu 29. nóvember 2005 06:00 Magnús Þór Sigmundsson hefur samið vinsæl lög á borð við Ísland er land þitt og Blue Jean Queen.
Hinn ástsæli lagahöfundur Magnús Þór Sigmundsson heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld í tilefni af útkomu plötunnar Hljóð er nóttin. Magnús Þór Sigmundsson hefur unnið sér sess sem einn ástsælasti lagahöfundur þjóðarinnar og samið lög sem greipt hafa sig inn í hug og hjörtu jafnt eldri sem yngri kynslóða Íslendinga. Á meðal þeirra eru Ísland er land þitt, Ást, Jörðin sem ég ann og Blue Jean Queen. Hljóð er nóttin er fyrsta eiginlega sólóplata Magnúsar Þórs í tuttugu ár. Hann segist ekki hafa haft neinn sérstakan áhuga á því fyrr en núna að stíga á nýjan leik fram í sviðsljósið. "Mér líður betur að semja á bak við tjöldin. Ég gerði töluvert af því að spila út um allt á sínum tíma en fannst það ekkert gaman," segir Magnús Þór. "Ég var með plötu með nýju efni sem mig langaði að gera en síðan kom Steinar (Berg Ísleifsson) með hugmynd um að nálgast eldri lög sem aðrir hafa flutt og ég hef líka sungið og gefa þau út á plötu. Eftir að hafa velt því fyrir mér í dálítinn tíma ákvað ég að slá til," segir hann. Tvö af nýju lögunum voru sett á nýju plötuna. Þau eru titillagið Hljóð er nóttin, sem er fyrsta lag plötunnar, og Ólýsanleg, sem er það síðasta. Aðspurður hvort Magnús ætli næst að ljúka við plötuna sem hann var byrjaður á segir hann ekkert ákveðið í þeim efnum. "Ég er alltaf að búa til eitt og eitt lag. Það er að skapast stemmning í mér að fara að flytja sjálfur mitt efni. Það er samt beggja blands að vera í fremstu víglínu. Mér finnst það meira fyrir ungt fólk. Það er miklu meiri skemmtistemmning á þessum stöðum og ég er eiginlega meira hinum megin," segir Magnús. Á útgáfutónleikunum í kvöld mun Magnús Þór flytja lögin sín og jafnframt segja frá tilurð hvers lags fyrir sig. Jón Ólafsson aðstoðar hann við þessa upprifjun með innskotum og spurningum. Aðalatriðið verður þó flutningur allra laganna á plötunni auk þess sem einvala lið hljóðfæraleikara kemur fram. Auk Magnúsar Þórs, sem syngur og leikur á kassagítar, og Jóns Ólafssonar, sem leikur á hljómborð og raddar, koma fram þeir Stefán Magnússon, rafgítar, Róbert Þórhallsson, kontrabassi og Birgir Baldursson, slagverk. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og er miðaverð 2000 krónur. Miðasala fer fram á salurinn.is og í síma 5700400.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira