Innlent

Mikil vatnsnotkun í Reykjavík

Meðalvatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið gríðarlega að undanförnu vegna þurrka, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hefur hún farið upp í 85.630 þúsund tonn á sólarhring en er í eðlilegu árferði 47.520 þúsund tonn á sólarhring. Skýringanna á mismuninum má að hluta til leita í því að garðaeigendur vökva lóðir sínar meira en venjulega. Einnig verður að taka með í reikninginn að meðan ekkert rignir eru golf- og fótboltavellir vökvaðir mikið og reglulega. Þórólfur Jónsson hjá garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar segir að undanfarið hafi mikið þurft að vökva nýgróðursett tré og sumarblóm, ekki síst þau sem eru í kerjum og körfum, enda séu þau mjög viðkvæm fyrir þurrki. Hann segir ekki verið að vökva grasbletti. Aðspurður segir hann að þrátt fyrir þetta verði ekki vandræðum bundið að hafa sumarlegt 17. júní.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×