Innlent

Sjóræningjaskip á karfaslóð

Nokkur skip sáust í eftirlitsflugi TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, á karfaslóð á Reykjaneshrygg utan íslenskrar lögsögu í gær. Um olíuskip, flutningaskip og veiðiskip var að ræða og eru tvö skipanna svokölluð sjóræningjaveiðiskip. Öll hin skipin eru á skrá hjá Norðausturatlantshafsfiskveiðiráðinu. Hafsteinn Heiðarsson, flugstjóri TF-SYN, náði myndum af skipunum á meðan þau voru að athafna sig bæði við umskipun og olíuáfyllingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×