Hefur ekki þegið fleiri boð 16. júní 2005 00:01
Dorrit Moussaieff forsetafrú hefur ekki þegið fleiri boð með einkaþotu Baugs en það, sem Séð og heyrt sagði frá í gær. Forsetaskrifstofan hefur gefið þá skýringu að Dorrit hafi hitt forstjóra Baugs og unnustu hans í Feneyjum og þá boðist að fljúga með þeim heim í einkaþotunni. Í tímaritinu Séð og heyrt eru birtar myndir af einkaflugvél Baugs þegar hún lenti með forsetafrúna, Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs, og Ingibjörgu Pálmadóttur, unnustu hans, á Reykjavíkurflugvelli aðfararnótt síðastliðinn föstudag. Á flugvellinum beið Toyota Land Cruiser jeppi sem er í eigu forsetaembættisins eftir Dorrit. Þegar fréttastofa Bylgjunnar og Stöðvar tvö leitaði í gær svara við því hvers vegna forsetafrúin ferðaðist með einkaþotu Baugs og hvort það væri eðlilegt svaraði Örnólfur Thorsson, skrifstofustjóri forsetaskrifstofu, því að forsetaskrifstofan hefði hingað til ekki verið að elta ólar við frásagnir í Séð og heyrt um forsetann og fjölskyldu hans og hún ætlaði ekki að byrja á því núna. Forsetaskrifstofan hefur hins vegar séð ástæðu til að elta ólar við tímaritið þegar Morgunblaðið leitaði sömu skýringa. Í blaðinu í dag er haft eftir Örnólfi að þetta sé fyrsta og eina skiptið sem Dorrit hafi flogið með umræddri vél. Segir hann að flugferðin hafi komið þannig til að forsetafrúin hafi verið stödd í Feneyjum vegna sýningar Gabríelu Friðriksdóttur á Feneyjatvíæringnum og þar hafi hún hitt Jón Ásgeir og unnustu hans sem hafi boðið henni að þiggja flugfar í einkaþotu þeirra til Íslands. Þau lentu á Reykjavíkurflugvelli aðfaranótt föstudag og á föstudagskvöldið var Dorrit sérstakur gestur Jóns Ásgeirs og unnustu hans á tískusýningu Mosaic Fashion sem er í eigu Baugs. Athygli vakti að forsetafrúin kom á forsetabílnum í lögreglufylgd en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var fjarri góðu gamni.
Fréttir Innlent Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira