Faðirvor, móðirvor og jafnréttisbarátta karldýra 3. desember 2005 16:45
Helgin 26. - 27. nóv. - Hengirúm og lágtæknisjúkrahúsÉg eyddi góðum hluta helgarinnar í hengirúmi sem sonur minn færði mér þegar hann kom heim frá Brasilíu í sumar og var að reyna að hugsa og koma skipulagi á þau verk sem ég ætla að vinna. Það er mjög gott að hugsa í hengirúmi. Eini gallinn er sá að manni hættir til að sofna. Ég geng með tvær bækur í maganum. Í hinni huglægu ómskoðun í hengirúminu kom í ljós að þær snúa báðar öfugt svo að þetta verður erfið fæðing. Verst að það skuli ekki vera hægt að taka bækur með keisaraskurði. Kannski það verði hægt þegar búið er að byggja hátæknisjúkrahús í húsaþvögunni innan um lágtæknisjúkrahúsin þarna á torfunni við Hringbrautina sálugu. Mánudagur 28. nóv. - Faðirvorið og móðirvoriðFór á bænastund í Hallgrímskirkju. Vinkona okkar Sólveigar er að gangast undir erfiða aðgerð við erfiðum sjúkdómi á sjúkrahúsi erlendis. Þarna var heilmikill mannfjöldi samankominn. Stór hópur fólks sem á sameiginlega vinkonu og vildi sameinast um að senda henni góðar hugsanir og fyrirbænir. Ég er ekki sérlega flinkur bænamaður. Hér fyrr á árum leit ég á Guð sem nokkurs konar mjög óáreiðanlegt pöntunarfélag og sendi honum stundum óskalista og fór fram á að hann gengi í ýmiss konar útréttingar fyrir mig eða útvegaði mér hitt og þetta. Mér fannst lítið koma út úr því og þótti þjónustan í Himnaríki litlu betri en hjá öðrum ópersónulegum stórfyrirtækjum. Svo breyttist þetta og ég hætti þessari heimtufrekju. Góður maður kenndi mér prýðilega bæn sem ég hef notað síðan með mjög góðum árangri og almennum. Hún er svona: Verði þinn vilji - ekki minn.Fyrir utan þessa bæn kann ég vitanlega faðirvorið eða móðirvorið sem er mjög kraftmikil bæn. Það er séra Auður Eir sem leiðir bænastundina. Hún notar orðið "hún" um Guð. Það finnst mér fínt. Almættið sem er langt ofar mínum skilningi hlýtur að vera orðið hundleitt á að láta í sífellu karlkenna sig. Ég reyni eftir megni að taka þátt í bæninni. Ég hef ekki hugmynd um hvernig bænir virka í raun og veru, en ég set það ekki fyrir mig. Ég skil ekki heldur hvernig alnetið virkar, það er rétt svo að ég skilji í megindráttum hvernig bensínmótor virkar. Ég er meira að segja ekki klár á því hvað rafmagn er þótt ég viti af reynslu að það er mjög kraftmikið og óþægilegt að fá það í sig. Mér finnst það eiginlega kraftaverk að sjá ljós kvikna innan í ljósaperu. Það er býsnamargt í veröldinni sem ég skil ekki en svínvirkar engu að síður. Ég vona að bænin virki.Þriðjudagur 29. nóv. - Meiðyrði í DV og aldraðar vændiskonurÉg sé að þeir/þær á DV eru hörundssárir. Þeir eru að emja í dag út af því að ég skrifaði í bakþanka í Fréttablaðinu í gær að fjölmiðlar væru fullir af fréttum af fólki sem kemur mér ekki nokkurn skapaðan hlut við og ég hef engan áhuga á. Þeir virðast hafa tekið þetta til sín sem var alls ekki meiningin því að ég var að tala um frægt fólk sem lifir í heimi sem er mér jafnfjarlægur og hann væri á annarri plánetu. En þetta finnst þeim greinilega slettirekuskapur. Þeir kalla mig álitsgjafa. Það flokkast örugglega undir meiðyrði. Ég nenni samt ekki í mál við þá. Ég vissi ekki að að svona viðkvæmni væri undir hörðum skrápnum á DV og mun reyna að forðast að særa þá/þær í framtíðinni því að þeir á DV vita ábyggilega jafnvel og ég að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Enda eru margar áhugaverðar fréttir í fjölmiðlum. Þessi þótti mér einna merkilegust í dag: "Vændiskonur á landsbyggðinni eru jafnan mun eldri en starfssystur þeirra í borgum - að minnsta kosti í Ástralíu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem ástralskur háskólaprófessor gerði. Elsta vændiskonan sem hann ræddi við var tæplega sextug en sumar þeirra sem talað var við í rannsókninni sögðust hafa unnið með portkonum sem komnar voru á sjötugsaldur, og ein var meira að segja enn starfandi á áttræðisaldri. En það er ekki eingöngu munur á söluaðilunum eftir því hvort um sé að ræða þéttbýli eða dreifbýli því niðurstöðurnar gefa til kynna að viðskiptavinirnir sem kaupa sér þjónustuna á landsbyggðinni eru mun kurteisari en þeir sem versla við vændiskonur í borgum." Þetta er eflaust bæði satt og rétt. Miðvikudagur 30. nóv. - Afmælisdagur stjórnleysingjansEins og venjulega þann 30. nóvember átti ég afmæli í dag. Þetta var fínn dagur. Sólveig dreif mig með sér í sund um morguninn og bauð mér svo í hádegismat á uppáhaldsveitingastaðinn minn, Jómfrúna. Sérrímarengstertan sem mamma eigandans þar bakar er lostæti sem engin orð fá lýst. Guðafæða. Annars er ég hófsmaður á tertur, en þessi er engu lík. Yfirhöfuð er ég hlynntur mánaðamótum. Það er tilbreyting í þeim og það væri leiðigjarnt ef allt árið væri bara einn óralangur mánuður. En gallinn við mánaðamót eru allir þessir reikningar sem sækja að manni úr öllum áttum. Skæðadrífan er óvenjuþykk núna. Það er ótrúlegt hversu mörg fyrirtæki hafa náð að tengja sig við mig til að tappa af mér peningum. Stundum langar mig til að rífa allar þessar leiðslur úr sambandi. Neita að borga. Byggja mér fjallakofa í óbyggðum. Lifa á fjallagrösum og silungi. Afsala mér kosningarétti og neita að borga skatta. Hætta að viðurkenna peninga sem gjaldmiðil og nota gluggapóst eingöngu í uppkveikju. Ég er nefnilega stjórnleysingi innst inni. En ég læt ekki á því bera. Ég vinn og vinn og borga og borga og læt vel að stjórn svo að þjóðfélagið gruni ekki að ég sé í rauninni stjórnleysingi. Kannski ég sé ekki einn um þetta. Kannski maður ætti að skella smáauglýsingu í blöðin og auglýsa stjórnleysingamót í Ódáðahrauni næsta sumar og stofna stjórnleysingjafélag. En sennilega þýðir það ekki neitt. Enginn raunverulegur stjórnleysingi mundi gefa kost á sér í stjórn í stjórnleysingjafélaginu. Við erum og verðum höfuðlaus her. Fimmtudagur 1. des. - Áfram strákar!Fór á skemmtilega ráðstefnu í morgun. Fyrsta karlaráðstefnan um jafnréttismál, bara ein kona á svæðinu, frú Vigdís. Flestir voru mjög alvörugefnir, það er kannski skynsamlegt, en mér finnst samt gaman að karlmenn skuli loksins vera að ná því að jafnrétti kynjanna er báðum aðilum fyrir bestu. Með öðrum orðum að þeir græði á jafnréttinu. Allt sem karldýrin telja sig geta grætt á er mjög vinsælt um þessar mundir. Ferð í Borgarnes með Súsönnu Svavarsdóttur, Ragnari Arnalds og Ólafi Gunnarssyni að lesa upp. Bók Ragnars um Jörund hundadagakonung er greinilega hörkuspennandi. Skelli henni á jólagjafalistann. Föstudagur 2. des. - Lifað í núinuOkkur tókst að borga reikningana um mánaðamótin. Þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af þeim lengur. Nú getur maður snúið óskiptri athyglinni að því að hafa áhyggjur af desember-reikningunum. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að næstu mánaðamót verði strembin. Reyni samt að lifa í núinu og láta hverjum degi nægja sína þjáning. Mikið var lífið einfalt áður en skrattinn fann upp kreditkortin.
Menning Mest lesið Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku Áskorun Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Lífið Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Lífið Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Lífið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Fleiri fréttir Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Sjá meira