Endur í vegi framfara 3. desember 2005 15:00
Almenningsgarðar skipa jafnan stóran sess í öllum betri borgum og nægir að nefna Central Park í New York, Hyde Park í London og Frognerpark í Osló því til stuðnings. Með talsverðri víðsýni má kannski kalla Hljómskálagarðinn og Miklatún vísi að slíkum garði en lengra nær það ekki. Hugmyndir að almenningsgarði eru sannarlega til og meira að segja gert ráð fyrir honum sem hugsanlegum framtíðarmöguleika á aðalskipulagi borgarinnar. Nýja Hringbrautin gæti hins vegar sett strik í reikninginn. Gatan er orðin sannkallað olnbogabarn og sá þykir varla maður með mönnum í borgarstjórn sem hefur ekki barið sér á brjóst og annað hvort beðist afsökunar eða svarið af sér ábyrgð á framkvæmdinni.Styttri stokkurMeðal þeirra hugmynda sem komu fram um nýja Hringbraut var að setja hana í stokk. Höfuðborgarsamtökin lögðu til að stokkurinn næði frá Bústaðavegi vestur fyrir Njarðargötu, nokkurn veginn á sama svæði og nýja Hringbrautin liggur um núna. Sú hugmynd var afskrifuð af yfirvöldum, þótt nú virðist vera komið annað hljóð í strokkinn, hversu raunhæft sem það kann að vera að leggja hið gríðarlega umferðarmannvirki sem Hringbrautin er í stokk. Önnur hugmynd sem kom fram á sínum tíma fólst í að leggja stuttan kafla Hringbrautarinnar, frá Njarðargötu og vestur fyrir Melatorg, í stokk með það að markmiði að létta umferð og skapa betri og öruggari tengingu milli háskólasvæðisins og miðbæjarins. Hugmyndin lýtur fyrst og fremst að því að leysa staðbundinn umferðarvanda. Að sögn Stefáns Finnsonar hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar aka um þrjátíu til fjörutíu þúsund bílar um þetta svæði daglega og gæti stokkur minnkað umferð á yfirborðinu um allt að helming og lækkað slysatíðni. Tjörnin yfir HringbrautEkki hafa komið fram hugmyndir um að reisa hús á yfirborðinu. Svæðið að ofanverðu myndi því sóma sér vel sem stór almenningsgarður og hefur finnski arkitektinn Alvar Alto meðal annars útfært hugmyndir þar sem Tjörnin heldur áfram sunnan við Hringbrautina. Þá er hægt að koma fyrir hjóla- og göngustígum og búa til blómlegt útivistarsvæði. Að sögn Dags B. Eggertssonar, formanns skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, þykir þessi hugmynd einn af nokkrum raunhæfum framtíðarmöguleikum. Aðrar framkvæmdir eru þó taldar brýnni, þar á meðal Sundabraut, Miklabraut og Öskjuhlíðargöng. Engin frumhönnun liggur fyrir á hugmyndinni um stokkinn á þessu svæði sem hér um ræðir svo ekki er hægt að meta kostnaðinn af framkvæmdinni. Steinn í götuÞað er hins vegar ljóst að aðrar stokkalausnir eru sennilega arðbærari hvað varðar landrými og lóðaverðmæti, sem gera þennan kost ólíklegri en ella. Dagur fullyrðir þó að ekkert sé útilokað og bíður meðal annars eftir afrakstri hugmyndasamkeppni um um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. Annar vandi sem þótti standa þessari framkvæmd fyrir þrifum var áhrifin sem hún gæti haft á vatnsbúskap tjarnarinnar sem og fuglalíf í grenndinni. Eins og Örn Sigurðsson hjá Höfuðborgarsamtökunum bendir á hlýtur því hins vegar ávallt að fylgja rask þegar borgir eru byggðar. Það megi hins vegar takmarka með því að þétta byggð en ekki dreifa henni um holt og hæðir eins og gert hefur verið í Reykjavík með ófyrirséðum afleiðingum á fuglalíf. Þá telur Örn að auðveldlega megi leysa vatnsbúskap Tjarnarinnar með því að dæla vatni úr Vatnsmýrinni í hana en að hans sögn er það hægt með litlum tilkostnaði.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira