Réðst að vopnuðum þjófi og hélt föstum 1. desember 2005 07:00 Á vettvangi. Innbrotsþjófurinn fór inn í hvern bílinn á fætur öðrum eins og sjá má á glerbrotunum á bílastæðinu við Laugardalslaug.
Maður var barinn þrívegis með hafnaboltakylfu um klukkan átta í gærmorgun á bílastæðinu við Laugardalslaug. Sauma þurfti þrjú spor í andlit hans og er hann hugsanlega nefbrotinn. Var maðurinn á leiðinni að bíl sínum þegar hann sá að innbrotsþjófur var að mölva bílrúðuna og skarst þá bíleigandinn í leikinn. Innbrotsþjófurinn lamdi hann í andlitið með kylfunni, svo í hnakka og loks í bakið. Bíleigandinn náði að snúa innbrotsþjófinn niður og hélt honum nokkra stund. Kallaði hann á vegfarendur sem voru þar nokkrir á ferð í nánd en enginn kom honum til hjálpar fyrr en eftir allnokkrar mínútur. Þá komu tveir menn og leystu bíleigandann af við fangabrögðin en hann var farinn að grátbiðja um hjálp enda orðinn þjakaður mjög. Héldu mennirnir tveir þjófnum meðan annar vegfarandi kallaði á lögregluna, sem var fljót á vettvang. Innbrotsþjófurinn hafði að sögn lögreglu brotið rúður í tveimur bílum þegar hann var staðinn að verki og unnið töluverðar skemmdir á öðrum þeirra. Eigandi annarrar þeirra saknar enn fartölvu sem var í bílnum og telur lögreglan hugsanlegt að innbrotsþjófurinn hafi falið hana áður en hann hófst handa við næsta bíl. Að sögn lögreglunnar var maðurinn undir áhrifum vímuefna þegar hann var handtekinn. Ekki var hægt að yfirheyra hann fyrr en í gærkvöldi og þegar Fréttablaðið fór í prentun var enn ekki búið að ákveða hvort hann yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald. "Við erum ofboðslega leið yfir því að fólk sé að slasast hérna fyrir utan hjá okkur," segir Þórunn Auðunsdóttir, kynningarfulltrúi World Class, sem er með líkamsræktarstöð á þessum stað. "Við höfum sett myndavélar hér fyrir utan en þær duga skammt í þessu myrkri. Við höfum áhuga á því að lýsa upp bílastæðið en það er stórt verkefni og æskilegt væri að við gerðum það í samvinnu við borgina," segir hún. Hvað áhrærir sein viðbrögð vegfarenda ber að geta þess að þar sem dimmt var þegar atvikið átti sér stað er óvíst hvort þeir hafi áttað sig á því hvað var að gerast. Eins segir Þórunn að mörg skólabörn fari þarna um á þessum tíma og gætu þau hafa verið á meðal þessara vegfaranda.
Innlent Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira