Vinna kauplaust og svelta heilu hungri 1. desember 2005 05:00 Brasilískir verkamenn. Þeir voru sagðir vera sérfræðingar frá fyrirtækinu Brazilian Gypsium. Mennirnir kannast ekkert við það og fulltrúar Trésmíðafélags Reykjavíkur telja þjónustusamninginn ekki vera fokheldan. "
Það var vinur Magnúsar í Brasilíu sem réð okkur. Magnús hafði samband við hann. Við höfum verið tvo mánuði án launa, október og nóvember," segir Paulo Alves frá Receefe í Brasilíu. Alves er einn tíu manna frá Receefe sem verið hafa í vinnu hjá fyrirtækinu Nýgifs sem er í eigu Magnúsar Guðmundssonar. Fimm þeirra hafa gefið sig fram við Trésmíðafélag Reykjavíkur og kvartað sáran undan illri meðferð vinnuveitandans. Þeir eru nú á heimleið. "Raunin er sú að þeir hafa soltið heilu hungri. Þetta eru fimm menn. Svo eru aðrir fimm sem af einhverjum ástæðum eru enn að vinna. Magnús er með einhvern mjög dularfullan þjónustusamning sem hann kallar svo og framvísar," segir Halldór Jónasson, starfsmaður hjá Trésmíðafélagi Reykjavíkur, en félagið hefur tekið mennina fimm upp á arma sína. Halldór segir Magnús hafa fengið leyfi fyrir mennina frá Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun í skjóli þess að um þjónustusmning sé að ræða. Mennirnir voru sagðir vera sérfræðingar frá fyrirtæki sem kallað var Brazilian Gypsium. Magnús segir mennina ekkert kannast við slíkt fyrirtæki. "Ég er að undirbúa skaðabótakröfu upp á milljónir," segir Magnús Guðmundsson, eigandi Nýgifs. Hann gefur þó ekki upp hvern hann ætli að lögsækja. Magnús segir það vera fjarri lagi að hann sé einhvers konar þrælahaldari. Hann segist hafa greitt þeim hverjum og einum 250 þúsund krónur í mánaðarlaun og veitt þeim góðan aðbúnað á gistiheimili á Akranesi og í leiguíbúð í Kópavogi. Þeir hafi síðan launað sér greiðann með því að valda stórtjóni á vinnustað. Einn hafi meira að segja gerst svo frakkur að stela af sér bíl, klessukeyra aðra bíla og stinga svo af. Hann kveðst í þokkabót hafa fengið hótanir frá afrískum vini mannanna. "Þessir strákar hafa ekkert landvistarleyfi. Þeir koma inn á þjónustusamningi sem er að öllum líkindum ekki fokheldur. Þetta er eitthvað sem Magnús hefur bara búið til. Þetta er glæpsamlegt, ekkert annað," segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Trésmíðafélags Reykjavíkur. Magnús Guðmundsson varð þekktur fyrir nokkrum árum þegar hann framleiddi heimildarmynd gegn málstað Grænfriðunga og mælti fyrir hvalveiðum.
Innlent Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri fréttir Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Sjá meira