Valdabrölt á stjórnarheimilinu 1. desember 2005 05:00 Íbúðalánasjóður. Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, ítrekar styrka stöðu sjóðsins á blaðamannafundi í síðustu viku. Kenningar eru á lofti um að skeytasendingar á milli Lánasýslu ríkisins og Íbúðalánasjóðs beri vott um pólitískt valdabrölt Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Í síðustu viku kom í ljós að mikil átök eru á milli stjórnarflokkanna um hver ætti að stjórna Íbúðalánasjóði. Sjóðurinn, sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið, er eina fjármálastofnunin sem framsóknarmenn stjórna. Nú vilja sjálfstæðismenn að sjóðurinn heyri undir fjármálaráðuneytið. Íbúðalánasjóður komst í fréttirnar í liðinni viku þegar haft var eftir Þórði Geir Jónassyni, forstjóra Lánasýslu ríkisins, að ekki væri unnt að svara spurningum um ríkisábyrgðir til sjóðsins vegna þess að niðurstöður úttektar á fjárhagsstöðu sjóðsins væru ekki fyrirliggjandi. Þetta töldu æðstu stjórnendur sjóðsins að túlka mætti sem svo að fjárhagsstaða hans væri óljós. Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, boðaði í kjölfarið til blaðamannafundar til þess að ítreka styrka stöðu sjóðsins. Þetta taldi Guðmundur vera áríðandi enda gæti vafi um stöðu sjóðsins haft slæm áhrif á lánshæfismat hans, og hugsanlega ríkissjóðs í kjölfarið, enda er sjóðurinn í eigu ríkisins og þau fyrirtæki sem leggja mat á lánshæfi sjóðsins eru þau sömu og meta lánshæfi ríkissjóðs. Illskiljanleg skeyti Þessar yfirlýsingar og efasemdir um stöðu sjóðsins virtust illskiljanlegar í fyrstu þar sem engar augljósar skýringar var að finna á þessum skeytasendingum í fjölmiðlum milli tveggja ríkisstofnana. Við nánari athugun kom þó í ljós að um einhvers konar valdabrölt var að ræða. Í kjölfar blaðamannafundarins skaut hver heimildarmaðurinn á fætur öðrum upp kollinum og töluðu þeir allir í þá veru að hér væri um langtímamarkmið embættismanna í fjármálaráðuneytinu að ræða. Hugmyndin væri að ná starfsemi Íbúðalánasjóðs til Lánasýslu ríkisins og þar með undir stjórn fjármálaráðuneytis í stað félagsmálaráðuneytis. Lánasýslan væri kjörin til þessa, einmitt vegna þess að umsvif hennar hefði farið minnkandi í kjölfar minni útgáfu á skuldabréfum ríkissjóðs. Það var einnig haft á orði að endanlegt markmið með þessum hugmyndum væri að færa starfsemi sjóðsins alfarið á hendur banka og sparisjóða. Hugmynd sem sjálfsagt er góðra gjalda verð, en hefur ekki opinberlega verið kynnt af stjórnvöldum. Lykilorðið hér er einkavæðing. Eftir hverju er að slægjast? Íbúðalánasjóður hefur um árabil fjármagnað fasteignakaup þegna landsins með lánveitingum. Þessi starfsemi kallar á umsýslu með stórar fjárhæðir sem miklu máli skipta í hagkerfi landsins. Svo dæmi sé nefnt hafa landsmenn greitt upp 158 milljarða króna af lánum hjá Íbúðalánasjóði eftir að bankarnir hófu að veita húsnæðislán á miðju ári í fyrra. Þannig má ljóst vera að allar ákvarðanir um starfsemi og framtíð sjóðsins geta verið afdrifaríkar. Ágreiningur á milli hverra? Íbúðalánasjóður heyrir undir félagsmálaráðuneyti. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, er þingmaður Framsóknarflokksins. Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, Guðmundur Bjarnason, var á sínum tíma ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn. Fjármálaráðherra, Árni Matthiesen, er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Lánasýsla ríkisins er stofnun sem heyrir undir fjármálaráðuneytið. Og þótt Árni Matthiesen hafi ekki setið lengi á stóli fjármálaráðherra, eru í fjármálaráðuneytinu embættismenn sem hafa yfirsýn yfir starfsemi þess og eru vel handgengnir Sjálfstæðisflokknum. Að þessu töldu mætti ætla að hér sé um valdaágreining milli stjórnarflokkanna að ræða. Til er sá maður Ráherrarnir tveir, Árni og Árni, hafa kosið að tjá sig lítið um málið á opinberum vettvangi enda ekki líklegt að þeir vilji verða fyrstir manna til að koma upp um núning á stjórnarheimilinu. Til er sá maður sem framsóknarmenn hafa sín í millum nefnt yfirráðherra Sjálfstæðisflokksins. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, hefur í gegnum tíðina verið lykilmaður í einkavæðingu ríkisfyrirtækja, einu af helstu stefnumálum Sjálfstæðisflokksins. Árni Magnússon félagsmálaráðherra var í vikunni spurður hvort það gæti staðist að valdabrölt með Íbúðalánasjóð ætti rætur sínar að rekja til embættismanna í fjármálaráðuneytinu. Úr svari ráðherrans mátti lesa að ekki aðeins ætti þetta við rök að styðjast, heldur einnig, að úr þessum áformum yrði aldrei nokkuð með samþykki framsóknarmanna. Ekki þarf að orðlengja það að embættismenn í fjármálaráðuneytinu hafa kosið að tjá sig ekki um málið.
Innlent Mest lesið Rodríguez réttir Bandaríkjunum sáttarhönd Erlent Jón Gnarr biðst afsökunar Innlent Margrét Löf sættir sig ekki við sextán ára dóm Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Innlent „Nú er nóg komið“ Erlent Ekki endilega betri heimur fyrir Ísland Innlent „Ég neyðist til að segja það hreint út“ Erlent Flugsamgöngur lamaðar og þúsundir sitja fastar Erlent Tíu sakfelld fyrir að halda því fram að forsetafrúin sé trans Erlent Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Erlent Fleiri fréttir Nýr veruleiki ætli Bandaríkin að taka Grænland Segir of mikla fyrirhöfn að stöðva áfengissendingar Ekki hægt að útiloka að Bandaríkin beiti valdi á Grænlandi Færri sem greinast með inflúensu og innlögnum að fækka Fjögur þyrluútköll á einum sólarhring Utanríkismálanefnd fundaði í morgun og Rodríguez sver embættiseið Margrét Löf sættir sig ekki við sextán ára dóm Vara við gróðureldum vegna flugelda Bæjarstjórinn vill leiða Framsókn í Hafnarfirði Ekki endilega betri heimur fyrir Ísland Enn kvikusöfnun og landris og líkur á eldgosi Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Örn sækist eftir fjórða sæti í Hafnarfirði Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Jón Gnarr biðst afsökunar Dýpra samtal og samvinna við Evrópusambandið „lykilbreyta“ „Ísland stendur þétt með vinum sínum“ Guðbjörg Oddný sækist eftir öðru sætinu Tveir ökumenn reyndust dvelja ólöglega á landinu Sauðburður er hafinn í Helgafellssveit Borgarstjórinn segist heita Heiða Smáríkið íhugar málsókn vegna aðgerða lögreglu Gæti orðið bylting fyrir konur á breytingaskeiði Er Miðflokkurinn hægriflokkur? „Flestum þykir vænt um bóndann“, segir formaður Bændasamtakanna Furða sig á viðbrögðum Þorgerðar sem dregur í land Útilokar ekki borgarastyrjöld Goddur er látinn Rauði krossinn veitti íbúum skjól eftir bruna Hverju skipta árásirnar á Venesúela í stóru myndinni? Sjá meira
Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Erlent
Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Erlent