Innlent

Skrifaði greinar með Kára

Jóhannes Björnsson
Jóhannes Björnsson

Jóhannes Björnsson, yfirlæknir við Landspítala - háskólasjúkrahús og nýr ábyrgðarmaður Læknablaðsins, og Karl Andersen hjartalæknir hafa verið í samstarfi við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og aðra lækna um að skrifa að minnsta kosti tvær fræðigreinar í erlend læknatímarit og útdrætti á vísindaþingum.

Jóhannes segir að ekki sé um nein fjárhagsleg hagsmunatengsl að ræða milli sín og Íslenskrar erfðagreiningar.

"Þetta snýst um það hvernig blað við viljum að Læknablaðið sé, ekkert annað. Þetta snýst ekki um persónu eins eða neins," segir hann.

Jóhannes og Karl voru í ritstjórn Læknablaðsins ásamt Vilhjálmi Rafnssyni, ábyrgðarmanni Læknablaðsins, þegar Kári Stefánsson krafðist þess í haust að eigendur blaðsins tækju umdeilda grein Jóhanns Tómassonar um sumarafleysingar Kára á Landspítalanum af vef blaðsins, gæfu út yfirlýsingu um að birtingin hefði verið mistök og bæðu hann afsökunar.

Þeir voru í hópi þeirra sem sögðu af sér í lok október og voru svo fengnir til að að koma aftur í nýskipaða ritstjórn Læknablaðsins. Ritstjórnin tekur til starfa í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×