Krabbameinsleit stór þáttur í að draga úr leghálskrabbameini 8. desember 2005 22:49
Leghálskrabbameinsleit er stærsti þátturinn í að draga úr tíðni leghálskrabbameins. Bólusetning kvenna mun ekki koma í veg fyrir nauðsyn þess að konur mæti til leitar. Leghálskrabbameinsleit hófst hér á landi árið 1964 og eru konur á aldrinum 25-69 ára boðaðar í leit á tveggja til þriggja ára fresti. Árlega greinast 15 til 18 konur með leghálskrabbamein og hátt í 1500 hundruð konur með forstigsbreytingar. Leghálskrabbameinsleitin sjálf hefur gert það að verkum að langflestar konur greinast snemma. Kristján Sigurðsson, yfirlæknir hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins, segir að leghálskrabbameinsleit kvenna hafi dregið úr tíðni leghálskrabbameins úr öðru sæti í það ellefta þegar algengi krabbameina er skoðað. Leghálskrabbamein orsakast af HPV veiru en verið er að vinna að bóluefni sem gæti valdið byltingu á sviði leghálskrabbameins. Bóluefnið virkar á tvo algengustu stofana af átján sem orskar um 70% af leghálskrabbameini. Bóluefnið mun þó aðallega nýtast næstu kynslóð kvenna. Kristján segir að bóluefnið komi ekki í veg fyrir að konur þurfi að mæta til leitar. Þær sem eru bólusettar þurfa áfram að mæta til leitar því bóluefnið nær ekki yfir alla stofna veirunnar. HPV smitast við kynmök og hafa þessi smit hæsta tíðni meðal yngri kvenna fyrst eftir að þær hefja kynlíf. Tíðni sýkinga minnkar með aldrinum og nær jafnvægi eftir fertugt. Talið er að um 80% kvenna smitist einhvern tímann af HPV og minnir Kristján á nauðsyn þess að nota verjur við samfarir. HPV smit eykst með fjölda rekkjunauta en veiran berst með þeim mönnum sem konurnar sofa hjá.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Sjá meira