Íslendingar vilja út úr Stoke 27. apríl 2005 00:01 "
Það er ekki hægt annað en að líta á þessa fjárfestingu sem slæma þar sem hún hefur ekki gefið neinn arð. Þetta er lélegasta fjárfesting sem ég hef farið í síðustu tíu árin," sagði Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum og stjórnarformaður Stoke Holding, í samtali við Fréttablaðið í gær. Auk þess að vera sá aðili sem sett hefur mestan pening í Stoke City á síðustu árum sá Magnús um að koma á laggirnir fjárfestingarfyrirtækinu Stoke Holding, sem stofnað var árið 1999 í þeim tilgangi að hafa umsjón með yfirtöku íslenskra fjárfesta á enska knattspyrnufélaginu Stoke City. Nú, sex árum síðar, hefur Magnús misst áhugann á félaginu og hefur hann auglýst félagið til sölu. "Ég mun ekki eyða meiri pening í þetta félag á meðan Tony Pulis er við stjórn," segir Magnús en Pulis var endurráðinn sem stjóri félagsins til eins árs í síðustu viku. Í viðtali við staðarblaðið í Stoke, The Sentinel, sem birtist í gærmorgun lýsir Magnús yfir megnri óánægju yfir þeirri ákvörðun íslensku stjórnarinnar að endurráða Pulis. "Pulis hefur ekki verið að vinna með okkur og hefur alltaf lýst því yfir að hann ætli sér að nota sína leikmenn," sagði Magnús við blaðið og vísar þar til stöðu Þórðar Guðjónssonar hjá félaginu en hann fær nánast engin tækifæri hjá Pulis þar sem einu haldbæru rökin virðast vera sú að Þórður sé Íslendingur. "Öll ánægjan af þessu starfi mínu er horfin. Ástríðan er ekki fyrir hendi lengur," sagði Magnús en ítrekaði að hann væri að tala fyrir sjálfan sig en ekki fyrir hönd annarra stjórnarmanna í Stoke Holding. Þrátt fyrir að vera ósammála stjórn félagsins um að ráða Tony Pulis ber Magnús stjórnarformanninum Gunnari Þór Gíslasyni vel söguna og segir Magnús hann hafa lagt hjarta sitt og sál í félagið á undanförnum árum. Gunnar Þór sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að Magnús hefði heilmikið fyrir sér í þessu máli og kveðst hann virða skoðun hans. "Hans hugsjón um að Stoke sé stökkpallur fyrir íslenska knattspyrnumenn í ensku knattspyrnuna er ekki að rætast og það er því fullkomlega eðlilegt að hann sé óánægður. Það er hans réttur að ákveða að setja ekki meiri pening í félagið og auðvitað setur sú ákvörðun Stoke í mikinn vanda. Ef ekki finnst einhver annar til að setja pening í félagið er ljóst að það þarf að draga saman seglin," sagði Gunnar Þór. Ekki er hægt að lesa annað af orðum beggja en að hin íslensku tengsl við félagið séu senn að rofna. Aðalfundur Stoke fer fram á Brittania-vellinum í Stoke á laugardaginn og mun Gunnar Þór þá tilkynna stuðningsmönnum og öðrum sem koma að félaginu að Stoke City sé til sölu. Má gera ráð fyrir að þær fréttir muni vekja töluverða athygli í breska knattspyrnuheiminum enda þykja það ávallt mikil tíðindi þegar hátt skrifað knattspyrnufélag hefur hug á að breyta eignarhaldinu. Magnús sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki vita hvort bréfin væru söluvara eða ekki en Stoke væri mjög spennandi félag fyrir góða fjárfesta. "Þetta er félag sem er betur rekið en mörg önnur í Englandi," segir hann. Án þess að nefna nokkrar tölur segist Magnús hafa sett mikinn pening í félagið á þessum sex árum. Spurður um hvort hann sjái eftir þeim peningum segir Magnús ekki svo vera. "Nei, nei. Ég reyni alltaf að hafa gaman af lífinu." vignir@frettabladid.is
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Leiknir selur táning til Serbíu Íslenski boltinn Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Fleiri fréttir Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Katla kynnt til leiks í Flórens Hitti bolta sem var á 167 kílómetra hraða Bannað að sniffa ammóníak í leikjum Svakalegir ráshópar á fyrsta degi á Íslandsmótinu í golfi Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Sjá meira