Davíð og Halldór deila 22. apríl 2005 00:01
Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn greinir á um hvort breyta eigi lögum um eftirlaun ráðherra og þingmanna til að koma í veg fyrir að fyrrverandi ráðherrar geti fengið greidd eftirlaun þrátt fyrir að vera enn í launuðum störfum á vegum ríkisins. Lög um eftirlaun ráðherra og þingmanna voru endurskoðuð í lok árs 2003 og í kjölfarið voru ný lög samþykkt. Þegar Fréttablaðið upplýsti snemma árs að nokkrir fyrrverandi ráðherrar þæðu eftirlaun þrátt fyrir að vera enn á fullum launum í öðrum störfum á vegum ríkisins hét Halldór Ásgrímsson því á Alþingi að ákvæðið yrði tekið til endurskoðunar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru framsóknarmenn staðráðnir í því að afnema ákvæðið úr lögunum, þótt sjálfstæðismenn segi það ekki koma til greina. Í þrjá mánuði hafa ráðherrar flokkanna tekist á um hvort, og þá hvernig, breyta eigi lögunum og var ætlunin að leggja fram nýtt stjórnarfrumvarp fyrir þinglok í maí. Meðal annars hafa flokkarnir tekist á um það hvort brotið yrði gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar ef tekinn yrði af mönnum réttur sem þeim þegar hefur verið fenginn, það er rétturinn á því að þiggja eftirlaun og laun samhliða. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að ekki stæði til að breyta lögunum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Halldór Ásgrímsson þó enn staðráðinn í því að beita sér fyrir því að þessi réttur verði afnuminn. Samþykki beggja flokka þarf þó til svo leggja megi fram stjórnarfrumvarp. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vonast framsóknarmenn enn til þess að flokkarnir nái saman um málið og ætla framsóknarmenn að reyna til þrautar að ná sáttum við samstarfsflokkinn um breytingarnar. Fulltrúar allra flokka stóðu að frumvarpinu á sínum tíma og hafa allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur lýst yfir vilja til að afnema ákvæðið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira