Farfuglar smitleið fuglaflensu 22. ágúst 2005 00:01
Rússneskir farfuglar frá Síberíu þar sem fuglaflensa geisar munu verða á vegi íslenskra farfugla í vetur. Allar líkur eru á að flensan berist í kjölfarið hingað til lands í vor. Í Novosibirsk í Rússlandi var unnið í því í dag að því að drepa fiðurfé í hundruðatali til að reyna að hefta útbreiðslu fuglaflensu sem valdið hefur uppnámi þar undanfarnar vikur. Flensan greindist fyrst á bóndabæ í Síberíu um miðjan júlí en síðan hefur hún breiðst hratt út. Hundrað og tuttugu þúsund fuglar hafi verið drepnir en allt kemur fyrir ekki því H5N1-stofn fuglaflensu, sá sem reynist mannfólki banvænn, finnst sífellt víðar. Rússar vilja nú alþjóðlegt átak til að berjast gegn flensunni. Það eru farfuglar sem koma frá Kína og Suðaustur-Asíu sem bera flensuna á sumarstöðvar sínar í Síberíu. Þaðan berst hún með fuglum til Miðausturlanda, sunnanverðrar Afríku og Evrópu. Níu milljónir vatna- og vaðfugla fara frá Síberíu til Evrópu á hverju ári og eiga þeir sér vetrarheimili á meginlandinu og Bretlandi - eins og fjöldi farfugla sem á sér sumarstöðvar hér á landi. Yfirvöld í Hollandi hafa þegar bannað útigöngu hænsna og í Þýskalandi stefnir í það sama. Bresk yfirvöld segja að þar í landi verði viðbrögðin svipuð á næstunni. Því má bæta við þetta að aldarfjórðungur er liðinn frá því að rannsóknir voru gerðar á flensu í fuglum hér á landi. Engar upplýsingar eru því til um hvort nýjustu stofna fuglaflensu sé að finna hér á landi. Sérfræðingar segja einu viðbrögðin við faraldri hér að drepa farfugla, eins og gert hefur verið annars staðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira