Deilt um stjórnarskrá í Írak 22. ágúst 2005 00:01
Ekkert bólar enn á stjórnarskrá Íraks en hún á að liggja fyrir í dag. Fréttaskýrendur segja hægt að lengja frestinn eða leysa upp þingið og efna til nýrra kosninga. Í síðustu viku gáfu írakskir þingmenn sér viku til viðbótar til að ná sáttum um drög að stjórnarskrá sem ennþá er deilt um. Virðist sem að þeir hafi um fátt annað að velja í dag en að framlengja frestinn um aðra viku. Sendiherra Bandaríkjanna í Írak mun sem stendur leiða viðræður samstarfshóps Sjíta og Kúrda og miðar starfið að því að hagræða þeim drögum sem nú liggja fyrir svo að Súnnítar geti sætt sig við þau. Súnnítarnir eru alls ekki reiðubúnir að sætta sig við kröfur Sjíta um sjálfstæð hérað Sjíta í suðurhluta Íraks, þar sem mikið er um olíulindir. Kúrdar krefjast einnig nokkurs sjálfstæðis og eru sagðir allt annað en sáttir við að íslam skuli vera orðinn mikilvægur hluti stjórnarskrárdraganna. Þessar þrætur eru ekki einungis vandræðalegar heldur eru Bandaríkjamenn á því að þær geti valdið frekari upplausn. Að sama skapi myndi stjórnarskrá draga úr ofbeldi, þó að fréttaskýrendur á staðnum segi ekkert bendi til þess. Á heimavelli í Washington magnast einnig deilur því í gær reið þungavigtarmaður úr röðum Republíkana á vaðið og gagnrýndi stríðsreksturinn. Chuck Hagel er talinn líklegur forsetaframbjóðandi eftir þrjú ár og hlaut heiðursmerki fyrir framgöngu sína í Víetnam. Hann sagði í sjónvarpsviðtali í gær að stríðið í Írak hefði valdið óöryggi og ringulreið í Miðausturlöndum og að ástandið minnti helst á Víetnam. Tímabært væri að huga að brotthvarfi til að valda ekki enn meiri ringulreið. Úr Hvíta húsinu berast þau skilaboð að það verð að halda áfram þar til yfir lýkur og varnarmálaráðuneytið vinnur nú að áætlun sem gerir ráð fyrir yfir hundrað þúsund bandarískum hermönnum í Írak eftir fjögur ár.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira