Banvænasta flensa sögunnar 23. ágúst 2005 00:01
Fuglaflensa er banvænasta flensa sögunnar. Meira en helmingur þeirra sem sýkjast lifa ekki af. Staðfest hefur verið að mannskæð fuglaflensa hefur borist til sjö þorpa í Kasakstan. Talin er bráð hætta á að H5N1-stofn fuglaflensu breiðist út um vesturhluta landsins. Flensan, sem fannst í Síberíu um miðjan júlí, hefur breiðst til Rússlands og óttast er að farfuglar beri hana til Evrópu í vetur. Flensan hefur enn sem komið er ekki borist í mannfólk á þessum svæðum. Frönsk heilbrigðisyfirvöld segja hættuna á fuglaflensusmiti í Evrópu af völdum farfugla frá Rússlandi takmarkaða en að rétt sé að vera á verði. Alifuglaframleiðendur þurfa til dæmis að fylgjast vel með fuglum sínum. Víða hefur verið brugðið á það ráð að hafa alifugla innan dyra, til að draga úr smithættu. Dýralæknar frá aðildarríkjum Evrópusambandsins funda í dag um hugsanleg viðbrögð. Innflutningur á fuglakjöti frá Rússlandi og Kasakstan hefur þegar verið bannaður. Framkvæmdastjórn Sambandsins taldi í gær óþarfa að gera frekari ráðstafanir að sinni. En það er ekki að ástæðulausu sem óttinn við fuglaflensuna er jafn mikill og raun ber vitni. Engin inflúensa í sögunni hefur jafn hátt dánarhlutfall. Af þeim hundrað og tólf sem vitað er að hafa smitast af banvæna stofninum hefur minna en helmingur lifað af. Dánarhlutfallið er fimmtíu og fimm prósent, mun meiran en spænska veikin á síðustu öld, til dæmis. Undir venjulegum kringumstæðum getur inflúensuvírus fjölgað sér í hálsi og lungum. H5N1 stofn fuglaflensunnar er hins vegar mun skæðari. Próteinið sem setur af stað fjölgun getur einnig orðið virkt í lifrinni, görnum og heila. Flensan er því ekki öndunarfærasýking heldur getur lagst á allan líkaman. Til viðbótar þessu kemur að frumuboðar frá ónæmiskerfinu eru margfalt fleiri þegar fuglaflensa leggst á menn en þegar venjuleg flensa er á ferð. Að jafnaði ráðast þessir frumuboðar á bakteríur en í miklu magni geta þeir haft lífshættuleg áhrif á vefi líkamans. Það er því ekki að ástæðulausu sem sérfræðingar hafa áhyggjur af fuglaflensunni, sem þeir segja einungis tímaspursmál um hvenær verði að alheimsfaraldri.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Sjá meira