Stoltur af íslensku þjóðinni 17. júní 2005 00:01
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra boðaði breytingar á stjórnsýslu landsins í sinni fyrstu þjóðhátíðarræðu í blíðskaparveðri á Austurvelli í gær. Hann kallaði jafnframt eftir auknu samstarfi ríkis og atvinnulífs á sviði nýsköpunar. "Mennirnir eru jafn ólíkir og þeir eru margir," voru upphafsorð forsætisráðherra. Í ræðu sinni kvaðst Halldór binda miklar vonir við störf endurskoðunarnefndar stjórnarskrárinnar sem skipuð var í byrjun þessa árs. Þá sagði hann ekki síður nauðsynlegt að endurskoða skipulag stjórnsýslunnar. "Það þarf að gera hana markvissari og meira í takt við tímann," sagði forsætisráðherra en síðast fór slík skoðun farið fram árið 1969. "Ég tel mikilvægt að hefjast handa um slíka endurskoðun nú í haust og ljúka henni á tiltölulega stuttum tíma." Halldór gerði að umtalsefni að ekki ætti að einblína á það sem miður færi heldur draga lærdóm af mistökunum og horfa björtum augum á framtíðina. Hann bar í framhaldi af því saman frásagnir af árinu 1955. "Sumir myndu kalla þetta rigningarsumarið mikla, aðrir myndu minnast þess sem ársins þegar Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin." Forsætisráðherrann lét þá skoðun enn fremur í ljós að stórfyrirtæki sem skiluðu miklum arði bæru samfélagslega ábyrgð og eðlilegt væri að þau tækju þátt í mikilvægum málum á sviði nýsköpunar, menningar og velferðar. "Þeim ber að nýta hagnað til að byggja upp." Halldór gat þess einnig að Íslendingar væru í fjórða sæti í heiminum yfir þær þjóðir sem sýndu hraðastar framfarir á sviði rannsókna og nýsköpunar. Mikillar bjartsýni gætti í ræðu forsætisráðherra, sem sagði að Íslendingar ættu að bera höfuðið hátt án þess að ofmetnast. "Ég er stoltur af íslensku þjóðinni." "Þetta er auðvitað orðið löngu tímabært, ríkisstjórnin hefur haft tólf ár til þessa verkefnis," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, um hugmyndir forsætisráðherra um breytingar á stjórnsýslunni. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, telur að með tillögum sínum sé forsætisráðherrann að beina sjónum almennings frá ástandinu eins og það er í dag. "Við ættum að endurskoða allt ferlið í kringum sölu á ríkiseignum, þar hefur framganga ríkistjórnarinnar verið með ólíkindum."
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira