Hjón slasast í gassprengingu 4. júlí 2005 00:01
Maður og kona fengu annars og þriðja stigs bruna eftir gassprengingu á tjaldstæðinu í Bjarkarlundi í fyrrakvöld. Maðurinn var inni í hjólhýsi sínu ásamt konunni að skipta um gaskút þegar upp kom gasleki. Sprengingin varð þegar gasið komst í snertingu við loga sem var á gashellu inni í hjólhýsinu. Fólkið, eldri hjón, var flutt með þyrlu á bráðamóttöku í Reykjavík og er nú á lýtalækningadeild á Landspítalanum í Fossvogi. Jónas Sigurðsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Patreksfirði, segir lögreglumenn hafa verið nálægt slysstað þegar tilkynningin barst. Þegar þeir komu að var hjúkrunarfræðingur sem býr í sveitinni þegar kominn á staðinn og byrjaður að aðstoða starfsmenn hótelsins í Bjarkarlundi við aðhlynningu á fólkinu. Starfsfólkið hlúði að fólkinu fyrsta hálftímann eftir sprenginguna. Jónas segir óhætt að fullyrða að starfsmennirnir hafi staðið sig með eindæmum vel við erfiðar aðstæður. "Tveir þjónar voru inni og fólkið sem ferðaðist með parinu var að fá sér kakó þegar þau komu inn öll brunnin og í rifnum buxum með hendurnar upp í loftið," segir Sveinn Ingi Árnason, starfsmaður á Hótel Bjarkarlundi. "Það var farið með þau inn í stofu sem er hérna og þau lögð á dýnu." Hann segir að starfsfólk hafi strax hringt í Neyðarlínuna og sinnt aðhlynningu með leiðbeiningum sem fengust gegnum síma. "Það voru allir í uppnámi, bæði starfsfólkið og svo líka fólkið sem var að ferðast með þeim." Starfsemin á Hótel Bjarkarlundi hélt áfram sinn vanagang í gær en Sveinn neitaði ekki að sumir starfsmenn væru enn í dálitlu uppnámi. Lögreglan á Patreksfirði segir að um slys hafi verið að ræða og rannsókn málsins sé lokið.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira