Ofurtrukkar 4. júlí 2005 00:01
Bandarískir ofurtrukkar, allt að fimm tonn að þyngd, virðast vera að ryðja sér til rúms sem smartasti heimilisbíllinn hér á landi. Hundruð slíkra bíla hafa verið flutt inn síðustu mánuði og eru þeir flokkaðir sem vörubílar. Svona tryllitæki verða æ algengari sjón, ekki bara á þjóðvegum landsins, heldur þeysist fólk um á slíkum tækjum um götur miðborgarinnar við allskyns snatt. Samkvæmt heimildum eru kaup á slíkum heimilistrukk ekki sálræn uppbót á líkamlegt atgervi heldur er ástæðuna að finna í Íslenskri tollalöggjöf. Ef fluttur er inn venjulegur fólksbíll er greiddur 45 prósenta tollur, en þegar bílarnir eru komnir í þennan stærðarflokk þá dettur hann niður í 13 prósent, fer í flokk með vörubílum, eða þá að tollurinn leggst alveg af ef þyngdin fer yfir fimm tonn. Þetta helst í hendur við lágt gengi bandaríkjadollars og því getur verið dýrara að flytja inn meðal fólksbíl frá Evrópu en svona heimilistrukk. Höfundur bókarninnar Saga bílsins á Íslandi, Sigurður Hreiðar segir segir vissulega dæmi um farartæki af þessari stærðargráðu. Hann segir svona ferlíki hafa verið notuð á áratugunum 1940-50 hér á landi og þá hafi bílarnir jafnvel verið stærri. Samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu voru um 300 slíkir bílar fluttir inn í lok síðasta árs. Það sem af er þessu ári eru þeir orðnir 350. Ætla má að ríkið verði af yfir einni og hálfri milljón í tekjur af hverjum þessara bíla, miðað við vanalegan fimm milljóna króna jeppa, vegna tollalaganna. Síðustu ár hafa orðin sparneytinn og umhverfisvænn verið notuð við að auglýsa bíla, en þau orð verða líklega ekki notuð yfir amerísku trukkana.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira