Telur bæinn ógna fornminjum 21. nóvember 2005 03:00 Herjólfsbærinn. Hér má sjá tölvugerða mynd af Herjólfsbænum eins og hann mun líta út. Hugmynd félagsins er að húsið verði öllum opið. Safnvörður í Byggðasafni Vestmannaeyja efast um gildi hússins og óttast um fornminjar sem eru órannsakaðar. "
Þetta er á órannsökuðu svæði. Það hefur ekki farið fram endurmat á minjum í dalnum en fornleifanefnd ríkisins er komin í það mál," segir Hlíf Gylfadóttir, safnvörður í Byggðasafni Vestmannaeyja. Herjólfsbæjarfélagið vinnur nú að því að reisa hús í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt eftir hugmyndum um hvernig byggingar litu út á landnámstíma. Hlíf hefur ritað greinargerð þar sem hún lýsir miklum efasemdum um ágæti framkvæmdarinnar og telur að hugsanlegar mannvistarleifar í Herjólfsdal kunni að vera í hættu. Í greinargerðinni segir Hlíf að sögulegt gildi hússins sé ekki til staðar og fullyrðir að það gefi svæðinu ekki aukið menningarlegt gildi. "Það er rík ástæða til þess að skoða Herjólfsdalinn nákvæmlega og fara vel yfir það hvort þarna kunni að vera einhverjar mannvistarleifar," segir Árni Johnsen, en hann er forsvarsmaður Herjólfsbæjarfélagsins. "Það var gerð úttekt á svæðinu fyrir átta eða níu árum og í kjölfarið var gefið út deiliskipulag þar sem samþykkt var að byggja á tveimur reitum. Þetta er annar þeirra," segir Árni. Árni segir að þegar farið var út í jarðvegsskipti undir Herjólfsbænum hafi ekkert komið upp úr krafsinu annað en urð, grjót og mold. "Því miður fundust engar beinagrindur. Ef við hefðum fundið einhverjar rústir undir húsinu þá hefðum við náttúrulega tilkynnt það og stöðvað framkvæmdirnar," bætir hann við. Árni kveður hugmyndina að bænum ekki vera nýja af nálinni. Þarna eigi að byggja í anda þeirra rústa sem fyrir eru í dalnum sem hann segir vera einar af best geymdu rústum landsins. "Herjólfsbæjarfélagið er áhugamannafélag samsett af einstaklingum og fyrirtækjum. Bærinn kemur þarna hvergi nálægt," útskýrir Árni. Hann er ekki tilbúinn til að gefa upplýsingar um kostnaðinn við bygginguna að svo stöddu.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Fleiri fréttir Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Sjá meira