Innlent

Veitt í fyrsta sinn

Ólafur Ragnar Grímsson veitti í gærkvöld Íslensku menntaverðlaunin í fyrsta sinn í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Grundaskóli á Akranesi hlaut verðlaun fyrir að hafa sinnt vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi. Kári Arnórsson, fyrrverandi skólastjóri Fossvogsskóla, var verðlaunaður fyrir merkt ævistarf. Rannveig Þorvaldsdóttir, kennari við Grunnskólann á Ísafirði, hlaut verðlaun í flokki ungs fólks sem í upphafi kennsluferlis hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt. Einnig fékk Sigfríður Björnsdóttir, höfundur námsvefsins "Tónlist í tímans rás", verðlaun sem höfundur námsefnis sem stuðlað hefur að nýjungum í skólastarfi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×