Innlent

Líður að lokun Hótel Bifrastar

Þeir eru sjálfsagt margir ferðamennirnir sem hafa einhvern tímann áð að Hótel Bifröst að sumarlagi. Vöxtur háskólasamfélagsins þar er hins vegar orðinn svo ör að þetta er síðasta sumarið sem það verður hægt. Það virðist ekki mikið um að vera að Bifröst þessa dagana. Nemendur voru brautskráðir á laugardaginn og flestir aðrir eru haldnir til sumarstarfa annars staðar. Hótelið opnaði í dag og fyrstu gestir fara að tínast inn í vikunni. Þetta er hins vegar sjaldgæft millibilsástand; á þessum stað er nefnilega allt á fleygiferð. Þó að launakönnun meðal útskrifaðra nemenda bendi til þess að konur fái þónokkru lægri laun er karlar eftir útskrift þá er ekki lát á uppbyggingunni á Bifröst. Hún er svo mikil að það líður að lokum hótelrekstrar á svæðinu. Sumarið í ár verður það fimmtugasta og síðasta sem hótel verður rekið á staðnum.   Ástæðan er einföld. Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur stækkað gríðarlega og aukið starfsemi sína og næsta sumar verður nemendum boðið upp á að sleppa sumarfríinu, halda áfram að læra á sumarönninni og stytta þar með námstímann. Þetta þýðir að ekki verður unnt að reka hótel samhliða eins og gert hefur verið síðustu fjörutíu og níu sumur. Hótelið er nú hluti af Fosshótelkeðjunni sem er í eigu ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Ætlunin er að byggja upp hótel í Reykholti í staðinn, að sögn starfsfólks á Bifröst sem segist munu sakna staðarins. Heilmiklar framkvæmdir verða í gangi yfir sumartímann. Ein bygging á að vera tilbúin í ágúst þar sem efri hæðirnar munu hýsa nemendur en neðsta hæðin verður aðsetur ýmissa nýrra rannsóknastofnana, svo sem Rannsóknarseturs verslunarinnar og Evrópufræðaseturs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×