Hátt gengi bitnar á landsbyggðinni 1. júní 2005 00:01
Öllum starfsmönnum fjögurra fyrirtækja í útflutningsgreinum á landsbyggðinni fengu uppsagnarbréf um mánaðamótin. Bílddælingur á Bíldudal sagði upp 50 starfsmönnum; Skinnaiðnaður á Akureyri tæplega 40; frystihús Skinneyjar-Þinganess á Reyðarfirði sagði upp 20 starfsmönnum og landvinnsla Samherja á Stöðvarfirði sagði upp rúmlega 30 starfsmönnum. Alls eru þetta um 140 manns í fjórum byggðarlögum. Forsvarsmenn þessara fyrirtækja hafa vísað til óvenju sterkrar stöðu íslensku krónunnar um þessar mundir sem hluta vandans. Sé gengið hátt fæst lægra verð í íslenskum krónum fyrir þær vörur sem fluttar eru út. Álvers- og virkjanaframkvæmdir á Austurlandi eru mikilvæg ástæða hins háa gengis, en nú er fjárfest fyrir hundruð milljarða fyrir austan. Fleira kemur þó til, þar sem miklar breytingar í íslensku atvinnulífi hafa ýtt undir hækkun gengisins. "Það lá alltaf fyrir þegar ráðist var í framkvæmdirnar að mótvægisaðgerðir Seðlabankans myndu ýta öðrum útflutningsgreinum til hliðar," sagði Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá greiningardeild KB banka. "Landsbyggðin byggir að miklu leyti á útflutningi og því kemur hátt gengi mjög illa við hana." Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans, tekur undir þetta sjónarmið. "Við hjá Landsbankanum höfum í nokkurn tíma bent á að sterkt gengi myndi sérstaklega koma niður á landsbyggðinni þar sem atvinnulífið er einhæft og sjávarútvegur og ferðaþjónusta vega þungt," sagði Edda Rós. "Því miður virðist það nú vera að koma í ljós." Ferðaþjónustan á einnig undir högg að sækja vegna hins háa gengis, en ekki ber jafnmikið á því í fjölmiðlum þar sem fyrirtækin eru smærri.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira