Innlent

Veiðin gekk illa í Norðurá

Segja má að laxveiðitímabilið hafi hafist í dag. Norðurá var opnuð með pompi og prakt en þrátt fyrir kjöraðstæður gekk veiðimönnum illa að ná í laxinn. Dagurinn hófst með hefðbundnum hætti með morgunverði stangveiðimanna í veiðihúsinu Rjúpnaási. Á slaginu klukkan sjö öslaði formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur, Bjarni Júlíusson, út í ána við „Brotið“ svokallaða. Formaður og varaformaður hefja alltaf veiðar þar við opnunina því þegar vetur voru snjóþungir og áin vatnsmeiri var það besti veiðistaðurinn, en er það víst ekki endilega lengur. Ritari og gjaldkeri óðu yfir ána og hófu veiðar á Eyrinni. Aðrir stjórnarmeðlimir voru neðar í ánni. Norðurárdalurinn skartaði sínu fegursta svo menn voru bjartsýnir. Það er mjög sveiflukennt hversu margir laxar koma á land í opnuninni í ánni. Meðaltal síðasta aldarfjórðungs er 25 laxar en þeir voru bara fjórir í fyrra og tíu í hitteðfyrra. Bjarni formaður var bjartsýnn áður en veiðarnar hófust í dag og spáði nítján löxum. Menn reyndu ýmsar leiðir, staði og flugur og köstuðu og köstuðu - hvíldu sig auðvitað aðeins í sólinni inn á milli - en allt kom fyrir ekki. Tveimur og hálfum tíma síðar hafði sá silfraði ekki svo mikið sem látið sjá sig. Það er mælt með því að menn sleppi laxi sem veiðist. Aðspurður hvernig veiðimenn taki í það segir Bjarni að flestir taki vel í það. Bjarni segir menn telja að þetta geti orðið gott laxveiðisumar, árið í fyrra var t.d. eitt af fjórum bestu á sl. tuttugu árum. Hann spáir að árið í ár verði a.m.k. jafngott - ef ekki betra. Því er við að bæta að það hefur ekki gerst í sextán ár að ekki komi lax á land í opnuninni í Norðurá. Opnunin telst hins vegar tveir og hálfur dagur - frá klukkan sjö að morgni 1. júní til hádegis þann þriðja - svo enn er von.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×