Bílddælingar slegnir en vongóðir 1. júní 2005 00:01
Allir starfsmenn fiskvinnslufyrirtækisins Bílddælings fengu uppsagnarbréf í lok vinnudags á þriðjudag og er uppsagnarfresturinn einn mánuður. Búist er við að fyrirtækið haldi áfram að starfa en endurskipuleggja á reksturinn meðan uppsagnarfresturinn rennur út. Bílddælingur tók til starfa í febrúar 2003 og réði þá yfir 200 tonna byggðakvóta sem Þórður Jónasson ehf. á Bíldudal hafði fengið úthlutað. Byggðastofnun minnkaði þann kvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Bílddælingur þurfti því að leigja allan kvóta fyrir togskipið Hallgrím BA 77, sem fyrirtækið fór í desember síðastliðnum að gera út ásamt fleiri aðilum, og má rekja erfiðleikana í rekstrinum til þess. Einnig hefur hátt gengi íslensku krónunnar verið því erfitt. Áður en Bílddælingur hóf útgerðina var það einungis fiskvinnslufyrirtæki sem keypti allt hráefni til vinnslu af fiskmörkuðum og smærri bátum, og gekk sá rekstur vel. Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð, mótmælir því að úthlutun kvótans hafi leitt til rekstrarstöðnunar fyrirtækisins. "Langmestur hluti þess byggðakvóta sem Vesturbyggð hafði til úthlutunar fór á Bíldudal." 138 tonnum af 218 var úthlutað til báta á Bíldudal og það var samkvæmt reglugerð frá sjávarútvegsráðuneytinu. Vesturbyggð hafði ekki heimild til að úthluta kvóta á fyrirtæki. Enn fremur var það skilyrði fyrir úthlutun kvóta að viðkomandi bátur legði fram að minnsta kosti sama magn af eigin kvóta til vinnslu í sveitarfélaginu. "Ég reikna með að Bílddælingur hafi gert samninga við heimamenn um vinnslu aflans." Hannes Friðriksson, sem rekur veitingastofuna Vegamót á Bíldudal, segir heimamenn vera slegna og að tíðindin hafi verið óvænt. "En ég er bjartsýnn þó þetta hafi komið mér á óvart og hef fulla trú á því að Bílddælingur starfi áfram. Atvinnuástandið hefur verið gott og hér eru öll hús full af fólki." Ekki náðist í framkvæmdastjóra Bílddælings.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira