Innlent

Virkjanarétturinn hjá heimamönnum

Skagfirðingar ætla að taka fullan þátt í álverskapphlaupinu og stofnuðu sérstakt félag í því skyni á Sauðárkróki í gærkvöldi. Þar var ákveðið að vinna að því að virkjanaréttur skagfirskra fallvatna yrði í höndum heimamanna. Um eitt hundrað manns mættu á stofnfund félagsins sem hlotið hefur nafnið Skagafjarðarhraðlestin. Opinbert markmið þess er að efla atvinnulíf í Skagafirði á sem fjölbreyttastan hátt. Fyrsta verkefni félagsins verður að vinna að því að koma virkjunarrétti í skagfirskum fallvötnum í hendur heimamanna og samþykkti fundurinn tillögu þess efnis einróma. Það að ná völdum yfir virkjanaréttinum er talin forsenda þess að Skagfirðingar geti tekið fullan þátt í baráttunni um álver og aðra stóriðju. Forystumenn í Skagafirði hafa ítrekað lýst því yfir að ekki komi til greina að virkja fallvötnin þar til atvinnuuppbyggingar í öðrum landshlutum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×