Innlent

Samtök fámennra skóla álykta

Samtök fámennra skóla hafa áhyggjur af "þeirri tilhneigingu sem nú virðist vera ríkjandi í landinu að sameina og leggja niður hvern skólann af öðrum í nafni fjárhagslegrar hagræðingar" eins og segir í ályktun samtakanna. Á nýafstöðnum aðalfundi þeirra var og lýst yfir áhuga á því að ríki og sveitarfélög ynnu saman að því að gera síðasta árið í leikskóla að skólaskyldu. Það fæli í sér endurgjaldslausan leikskóla að hluta. Á fundinum lýstu fundarmenn einnig yfir áhyggjum vegna áætlaðrar styttingar náms til stúdentsprófs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×