Innlent

Velta Háskólans 6,6 milljarðar

Heildarvelta Háskóla Íslands nam 6,6 milljörðum króna árið 2004 samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi Háskólans. Skráðir nemendur við skólann voru 8.725 í fyrra og fastráðnir starfsmenn 896 í 811 stöðugildum. Á árinu 2004 starfaði 1841 lausráðinn stundakennari við skólann. Skráðum nemendum hefur fjölgað úr 5.800 í tæplega 9.000 frá árinu 1997.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×